Framtíðin er núna : áformað borgarskipulag Reykjavíkur tekið til skoðunar

Útþensla byggðar er stór þáttur í sögu uppbyggingar Reykjavíkur sem hefur haft mikil áhrif á borgarumhverfið. Áherslan í skipulagsmálum undanfarna áratugi hefur ekki verið að sporna við þessari þróun heldur hefur þessi útþensla byggðar haldið áfram. Staða einkabílsins hefur styrkst og aðrir samgöngu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lárus Freyr Lárusson 1988-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28029
Description
Summary:Útþensla byggðar er stór þáttur í sögu uppbyggingar Reykjavíkur sem hefur haft mikil áhrif á borgarumhverfið. Áherslan í skipulagsmálum undanfarna áratugi hefur ekki verið að sporna við þessari þróun heldur hefur þessi útþensla byggðar haldið áfram. Staða einkabílsins hefur styrkst og aðrir samgöngumátar hafa þurft að gjalda fyrir það. En á síðastliðnum árum hefur orðið vitundarvakning í skipulagsmálum borgarinnar, því umfjöllunin um þéttingu byggðar, ofnotkun einkabílsins og skortur á betri möguleikum fyrir vistvæna ferðahætti hafa verið ofarlega í umræðunni sem hefur skilað sér í ýmsum úrbótum fyrir íbúa Reykjavíkur. Þétting byggðar og draga úr notkun einkabílsins eru helstu markmið borgaryfirvalda ef núliggjandi áform Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030 eru skoðuð. Því er vert að skoða hvernig staða Reykjavíkur er í dag og hvað veldur sterkri stöðu einkabílsins umfram aðra samgöngumáta, hvaða áhrif skipulag hefur á samgöngur, hvað þétting byggðar merkir og hvaða ávinning þétting byggðar getur haft í för með sér. Til að átta sig á þessum helstu markmiðum borgaryfirvalda er mikilvægt að styðjast við Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 þar sem farið er yfir framtíðaráætlun vaxtar borgarinnar. Hugmyndum um ákjósanlegri byggð er varpað fram sem svörun við markmiðum skipulagsins til að meta hvort áætlanir Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030 séu nægilega metnaðarfullar. Ólíkt Aðalskipulagi Reykjavíkur er ályktað að leiðin að bættara borgarumhverfi sé róttækari þétting nær miðju borgar.