Athugun á virkni veira í grunnvatni á Íslandi með notkun MS2 og PhiX174 sem staðgengla

Faraldrar af völdum nóróveiru hafa komið upp víða um heim. Nóróveirur valda sjúkdómum í mönnum og þá aðallega slæmrar magakveisu. Hér á landi hafa verið skráðir nokkrir faraldrar. Helstu smitleiðir sjúkdómsins er með menguðu vatni. MS2 og PhiX174 fagar voru notaðir sem staðgenglar fyrir nóróveirur....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Berglind Dögg Ómarsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27992
Description
Summary:Faraldrar af völdum nóróveiru hafa komið upp víða um heim. Nóróveirur valda sjúkdómum í mönnum og þá aðallega slæmrar magakveisu. Hér á landi hafa verið skráðir nokkrir faraldrar. Helstu smitleiðir sjúkdómsins er með menguðu vatni. MS2 og PhiX174 fagar voru notaðir sem staðgenglar fyrir nóróveirur. Þeim var sprautað í dialysuslöngur og komið fyrir í borholu í Kaldárseli þar sem markmiðið var að rannsaka hversu lengi veirur geta verið virkar í grunnvatni við íslenskar aðstæður. Helsti áhrifaþátturinn er hitastig og eru veirur virkar mun lengur í köldu vatni en heitu. Styrkur MS2 minnkaði um 1,8-log10 á 35 dögum, úr upphafsstyrknum 1,32*10^9 í 1,9*10^7, og styrkur PhiX174 minnkaði um 0,3-log10 á sama tímabili, úr upphafsstyrknum 6,7*10^8 í 2,1*10^8. Styrkur MS2 minnkaði því mun hraðar en PhiX174. Þessar niðurstöður leiða í ljós að veirur óvirkjast á löngum tíma við þessar aðstæður. Norovirus outbreaks have occured worldwide. Noroviruses cause acute gastrointestinal illnesses in humans. Several waterborne outbreaks have been reported here in Iceland. The main pathways of the disease are contaminated water. In this research MS2 and PhiX174 phages were used as surrogates for norovirus. They were injected into dialysis tubes and placed in a borehole in Kaldársel where the aim was to investigate how long viruses are active in groundwater under Icelandic conditions. The main influencing factor is temperature, as viruses are active much longer in cold water than in warm. The concentration of MS2 decreased 1,8 log10 in 35 days, from baseline 1,32*10^9 to 1,9*10^7, and the concentration of PhiX174 decreased 0,3 log10, from baseline 6,7*10^8 to 2,1*10^8. The concentration of MS2 decreased much faster than PhiX174. These results show that viruses take a long time to be inactive. Vatnsveita Hafnarfjarðar