Undirbúningur að Íslandsferð : upplýsingagjöf til erlendra ferðamanna

Áhugi á Íslandi sem áfangastað heldur áfram að aukast. Mikilvægt er að gæta að því að upplýsingar frá ferðamálayfirvöldum sem ætlaðar eru ferðamönnum endurspegli það sem þeir hafa áhuga á að vita. Niðurstöður sýna að algengast er að ferðamenn vilji fá allar almennar upplýsingar um Ísland, einhversko...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrafnhildur Ólafsdóttir 1976-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27976
Description
Summary:Áhugi á Íslandi sem áfangastað heldur áfram að aukast. Mikilvægt er að gæta að því að upplýsingar frá ferðamálayfirvöldum sem ætlaðar eru ferðamönnum endurspegli það sem þeir hafa áhuga á að vita. Niðurstöður sýna að algengast er að ferðamenn vilji fá allar almennar upplýsingar um Ísland, einhverskonar rafrænan kynningarbækling um Ísland þar sem týnt er saman hvaða afþreying er í boði, gistimöguleikar, bílaleigur og margt fleira. Margir vilja einnig fá upplýsingabækling á pappírsformi um Ísland og eftirspurn er eftir fríu góðu vegakorti. Ferðamenn spyrja einnig mikið um vegabréf og málefni tengd þeim. Athygli vakti að lítið var spurt um einstök svæði á Íslandi en helst var spurt um hálendi Íslands og þá gönguleiðir og gistimöguleika í Landmannalaugum og nágrannasvæðum. Lítið sem ekkert er spurt um önnur landssvæði en höfuðborgarsvæðið og Suðurland, en þó er talsvert spurt um almenningssamgöngur. Mikilvægt er að halda áfram að samræma og bæta upplýsingar sem ferðamálayfirvöld beina að ferðamönnum og vinna þarf í að þýða upplýsingar frá opinberum yfirvöldum á fleiri tungumál en ensku og þýsku. Slík vinna mun skila sér í ánægðari og betur upplýstari ferðamönnum og gera Íslandsdvöl þeirra ánægjulegri. Lykilhugtök: Aðdráttarafl og ímynd áfangastaða. Skilgreining á ferðamanni og gesti. Leitarhegðun ferðamanna . Ferðaþjónusta á Íslandi Interest in Iceland as a tourism destination continues to grow as it has in the past years. It is important that official information aimed at tourists reflect the topics and issues they are interested in knowing before visiting Iceland. Conclusions in this study show that what tourist are most interested in knowing before visiting Iceland are. General information on Iceland, e-brochure where they can find information on what to do and see in Iceland, accommodation, car rental, and they also want a good road map. Issues with passports and visa are also a common topic. What is most interesting is that most inquiries are on general terms and few are aimed at specific destination with in ...