Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi : viðhorf stjórnenda fyrirtækja í ævintýraferðaþjónustu

Ferðamannastraumur til landsins hefur aukist gríðarlega síðustu ár og ferðamenn á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú. Mikilvægi þess að öryggi sé í hávegum haft eykst í takt við fjölgun ferðamanna, ekki síst í ævintýraferðaþjónustu þar sem áhætta og spenna eru helstu drifkraftar. Slys sem orðið...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Valgerður Káradóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27973
Description
Summary:Ferðamannastraumur til landsins hefur aukist gríðarlega síðustu ár og ferðamenn á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú. Mikilvægi þess að öryggi sé í hávegum haft eykst í takt við fjölgun ferðamanna, ekki síst í ævintýraferðaþjónustu þar sem áhætta og spenna eru helstu drifkraftar. Slys sem orðið hafa í greininni, aukið framboð fyrirtækja samhliða fjölgun ferðamanna sem og skortur á rannsóknum öryggistengdra mála, voru ástæða fyrir tilurð verkefnisins Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á stöðu öryggistengdra mála í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi. Viðhorf stjórnenda til öryggisáætlana er kannað sem og hvaða áhrif öryggisáætlanir hafa á gæði þjónustu og öryggi starfsmanna og viðskiptavina. Megindlegri rannsóknaraðferð var beitt við vinnslu rannsóknarinnar og rafræn spurningakönnun send út til 220 fyrirtækja í ævintýraferðaþjónustu hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að meirihluti fyrirtækjanna eru með öryggisáætlun í gildi og telja að miklu máli skipti að fyrirtæki í ævintýraferðaþjónustu hafi slíka áætlun. Áberandi jákvæðni virðist ríkja meðal slíkra fyrirtækja gagnvart öryggisáætlunum og áhrifum þeirra á gæði þjónustu. Þá telja flest fyrirtækin að öryggisáætlanir stuðli einnig að auknu öryggi starfsmanna þeirra og viðskiptavina. Lykilorð: Ævintýraferðaþjónusta, slysahætta, áhætta, öryggisáætlun, viðhorf stjórnenda There has been a significant increase in tourist arrivals in Iceland in recent years. Visitor numbers have been higher than ever before. The importance of a high regard for safety, rises in line with the increase of tourist numbers; especially in adventure tourism where risk and excitement are the driving forces. Contributing factors towards the implementation of this study included accidents within the adventure tourism industry, an increase in supply of such services and a lack of safety studies in the field. The principal aim of this study is to shed light on the current position of safety as it pertains to ...