Kostnaður við rekstur lágmarksstærðar slökkviliðs samkvæmt íslenskum lögum og reglum

Lokaverkefni þetta er til B.Sc gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Markmið verkefnisins er greining lágmarkskostnaðar við lágmarks reglugerðar slökkvilið og einnig að bera saman hinn reiknaða kostnað við raunverulegan kostnað fjögurra slökkviliða utan höfuðborgarsvæðisins. Sveitarfélögi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Pétur Pétursson 1973-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27960
Description
Summary:Lokaverkefni þetta er til B.Sc gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Markmið verkefnisins er greining lágmarkskostnaðar við lágmarks reglugerðar slökkvilið og einnig að bera saman hinn reiknaða kostnað við raunverulegan kostnað fjögurra slökkviliða utan höfuðborgarsvæðisins. Sveitarfélögin Dalabyggð, Mýrdalshreppur, Snæfellsbær og Stykkishólmur voru valin til samanburðar þar sem þau uppfylla skilyrði verkefnisins um stærð og landfræðilega fjarlægð við stærri þéttbýlisstaði. Lágmarkskostnaður var greindur út frá lögum, reglugerðum og reglugerðardrögum, auk leiðbeiningarblaða sem Mannvirkjastofnun hefur birt um lágmarks fasteignastærð, vélar, tæki, búnað slökkvistöðvar, persónu- og einkennisbúnað og mannaflaþörf. Fasteignaverð var metið út frá gögnum Hagstofu Íslands um meðalkaupverð atvinnuhúsnæðis utan höfuðborgarsvæðisins og verð véla, tækja, og búnaðar var notast við frá Eldvarnamiðstöðinni, sem er einn stærsti söluaðili véla, tækja og búnaðar tengdum brunamálum. Annar stór kostnaðarliður í rekstri slökkvistöðva er laun starfsfólks en út frá mönnun lágmarks reglugerðar slökkviliðs og kjarasamnings slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna var hægt að reikna út hver árlegur kostnaður er við þennan útgjaldalið. Samkvæmt leiðbeiningum Mannvirkjastofnunar eru eignir afskrifaðar árlega og færðar sem kostnaður fyrir sveitarfélagið inn á afskriftarreikning til að mæta fjárþörf vegna endurnýjunar á 5, 10 og 30 ára fresti. Kostnaður lágmarks reglugerðar slökkvilið er síðan borinn saman við raunverulegan kostnað sveitarfélaganna fjögurra á tímabilinu 2005-2015 en allur kostnaður er reiknaður til verðlags mars 2017, með gögnum frá Hagstofu Íslands, til að auðveldara sé að bera saman upphæðir. Niðurstöður verkefnisins eru að stofnkostnaður lágmarks reglugerðar slökkviliðs er 199.237.610 kr. Árlegur rekstrarkostnaður er hinsvegar að meðaltali 51.033.065 kr. þar sem greidd eru laun alls starfsfólks og afskriftir eigna eru lagðar inn á afskriftarreikning til að mæta endurnýjun eigna og búnaðar. Borið saman við ...