Líknar- og lífslokameðferð á landsbyggðinni : rannsóknaráætlun

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að skoða þjónustu líknar- og lífslokameðferðar á landsbyggðinni. Með hækkandi lífaldri koma fleiri til með að þurfa meðferð og umönnun. Stór þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Arney Eir Einarsdóttir 1991-, Ester Lind Önnudóttir 1991-, Hekla Hrönn Þorvaldsdóttir 1991-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27944
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að skoða þjónustu líknar- og lífslokameðferðar á landsbyggðinni. Með hækkandi lífaldri koma fleiri til með að þurfa meðferð og umönnun. Stór þáttur í starfi hjúkrunarfræðinga er umönnun við lífslok þar sem lögð er áhersla á vönduð samskipti og persónulega umönnun við bæði sjúklinga og aðstandendur. Í mörgum dreifbýlum og smærri samfélögum er heilbrigðisþjónusta af skornum skammti og þurfa sjúklingar oft að leita langt í þjónustu. Í mörgum sveitarfélögum eru engin starfandi hjúkrunarheimili né heimahjúkrun og almenn heilbrigðisþjónusta lítil. Þurfa því margir að flytjast búferlum til að sækja heilbrigðisþjónustu. Hjúkrunarrými eru oft yfirfull og biðlistar langir einnig getur verið erfitt að halda uppi þjónustu þegar mannekla, fagleg einangrun og fjármagnsskortur hefur áhrif á gæði þjónustu. Í fyrirhugaðri rannsókn verður notast við eigindlega rannsóknaraðferð og stuðst verður við fyrirbærafræðilega hugmyndarfræði. Gagna verður aflað með viðtölum þar sem notast verður við opnar spurningar. Tekin verða viðtöl við reynda hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni sem hafa starfsreynslu í líknar- og lífslokameðferð. Höfundar telja að bæta þurfi skipulag og þjónustu líknar- og lífslokameðferðar á landsbyggðinni og koma á tengslaneti á milli svæða og byggja upp samstarf sem gerir minni stofnunum kleift að tengjast þeim stærri. Einnig viljum við efla fræðilega þekkingu á viðfangsefninu til frekari rannsókna. Lykilorð: Lífslokameðferð, líknarmeðferð, hjúkrun, landsbyggð, dreifbýli, eigindleg rannsóknaraðferð. The following research proposal is a thesis for B.S. degree in nursing at the University of Akureyri. The purpose of the proposed study is to examine the service provided in palliative andend-of-life care in small communities in rural areas in Iceland. Growth and a considerable increase in the elderly poulation in Iceland will result in more patients going to need ...