Fæðingarsamtal : rannsóknaráætlun

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni höfunda til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknaráætlunarinnar er að þróa og innleiða fæðingarsamtal fyrir frumbyrjur í mæðravernd, byggt á viðtalsramma sem unninn er út frá hugmyndafræði heildrænnar hjúkrunar (e. i...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Agla Ösp Sveinsdóttir 1990-, Brynja Sigurgeirsdóttir 1992-, Rannveig Jónsdóttir 1985-, Sunna María Schram 1984-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27929
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni höfunda til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknaráætlunarinnar er að þróa og innleiða fæðingarsamtal fyrir frumbyrjur í mæðravernd, byggt á viðtalsramma sem unninn er út frá hugmyndafræði heildrænnar hjúkrunar (e. integrative nursing), salutogenesis og öðrum þáttum tengdum barneignarþjónustu, og meta áhrifin af þeirri íhlutun. Höfundar draga ályktanir út frá þeim heimildum sem lagðar hafa verið til grundvallar rannsóknaráætlun þessari og nýta þær til að byggja fæðingarsamtalið upp. Kynnt eru drög að fimm útgangspunktum fæðingarsamtalsins í umræðukafla rannsóknaráætlunarinnar. Þeir eru: heildræn nálgun, ferli fæðinga, gagnlegar íhlutanir á meðgöngu, val á fæðingarstað og trú á eigin getu (e. self efficacy). Höfundar leggja til að notuð verði rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði í fyrirhugaðri rannsókn. Leitað verður svara við því hvort hægt sé að draga úr áherslu á áhættuþætti barneignarferlisins og auka vægi andlegs heilbrigðis og jákvæðrar upplifunar af fæðingu með innleiðingu fæðingarsamtals í 25 vikna skoðun mæðraverndar. Rannsóknarspurning fyrirhugaðrar rannsóknar, sem lögð eru drög af með þessari rannsóknaráætlun, er: getur fæðingarsamtal við frumbyrjur dregið úr fæðingarótta og aukið líkur á jákvæðri og valdeflandi upplifun fæðingar? Höfundar vonast til að í framhaldi af þessari rannsóknaráætlun verði fæðingarsamtal innleitt sem eitt af þeim viðfangsefnum sem ljósmóðir fer í gegnum í 25 vikna skoðun frumbyrja í mæðravernd. Fæðingarsamtalið hefur þarfir barnshafandi kvenna að leiðarljósi en það getur að auki dýpkað skilning og sýn heilbrigðisstarfsfólks á mikilvægi jákvæðrar fæðingarupplifunar því slík upplifun hefur langtímaáhrif á heilsu og vellíðan kvenna í samfélaginu. Lykilhugtök: fæðingarótti, fæðingarsamtal, frumbyrja, heildræn hjúkrun og salutogenesis. This research proposal is a thesis submitted towards a B.Sc. degree in Nursing at the University of Akureyri. The purpose of the research proposal ...