Offita barna : hefur lífsstíll fjölskyldu áhrif á holdafar barna?

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að skoða hver tengsl lífsstíls fjölskyldu eru við ofþyngd barna og að skoða hvort munur sé á lífsstíl fjölskyldna þar sem börn eru í kjörþyngd...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Iða Brá Kuforiji Markúsdóttir 1981-, Eyrún Björk Svansdóttir 1971-, Guðmunda Helgadóttir 1981-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27925
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að skoða hver tengsl lífsstíls fjölskyldu eru við ofþyngd barna og að skoða hvort munur sé á lífsstíl fjölskyldna þar sem börn eru í kjörþyngd og þeirra sem eru í ofþyngd eða glíma við offitu. Ofþyngd barna er vaxandi vandamál í heiminum og er Ísland þar engin undantekning. Of þung börn verða oft að of þungum fullorðnum og með því aukast líkurnar á að þróa með sér ýmsa sjúkdóma sem tengjast offitu. Þar má helst nefna stoðkerfissjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, áunna sykursýki, krabbamein auk ýmissa tilfinningalegra og félagslegra vandamála. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á orsökum og afleiðingum ofþyngdar og offitu en um fjölþættan vanda er að ræða sem tengist mörgum sviðum. Lífsstíll fjölskyldu er einn þeirra en við teljum hann ná yfir marga áhrifaþætti ofþyngdar og offitu og því ástæða til að rannsaka þennan þátt enn betur. Rannsóknaraðferðin sem notuð verður er megindleg og til að afla gagna verða notaðir spurningalistar sem sendir verða foreldrum níu ára barna í úrtaki sem á að endurspegla þýðið sem er, allt Ísland. Leitað verður svara við eftirfarandi rannsóknarspurningunum: Er munur á lífsstíl fjölskyldna barna í kjörþyngd og barna í ofþyngd? Eru tengsl á milli offitu barna og lífsstíl fjölskyldna? Fyrirhuguð rannsókn kemur til með að varpa ljósi á áður lítið rannsakaðan þátt í umhverfi barna og bent á leiðir sem ættu að geta komið í veg fyrir að börn þyngist óhóflega þannig að lífsgæði þeirra skerðist. Lykilhugtök: Offita, lífsstíll, líkamsþyngdarstuðull This research proposal is a thesis towards a B.S. degree in nursing at the University of Akureyri. The purpose of the proposed study is to look at possible connections between family‘s lifestyle and overweight in children and if there is a difference in the lifestyle of families where children are ideal weight and the families with overweight children. Children being overweight is a growing ...