Flokksblaðamennska og orðræða fjölmiðla : umræða Morgunblaðsins og Þjóðviljans árin 1949-1955 um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamninginn við Bandaríkin

Í ritgerð þessari er fjallað um umræðu Morgunblaðsins og Þjóðviljans á árunum 1949-1955 um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og varnarsamninginn við Bandaríkin sem gerður var árið 1951. Skoðaðar eru fréttir og leiðarar úr blöðunum og rýnt í frásagnarmáta þeirra af ákveðnum atburðum og á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hera Melgar Aðalheiðardóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27889
Description
Summary:Í ritgerð þessari er fjallað um umræðu Morgunblaðsins og Þjóðviljans á árunum 1949-1955 um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og varnarsamninginn við Bandaríkin sem gerður var árið 1951. Skoðaðar eru fréttir og leiðarar úr blöðunum og rýnt í frásagnarmáta þeirra af ákveðnum atburðum og ágreiningsmálum. Bækur voru einnig notaðar, einkum við öflun fræðilegra heimilda um fjölmiðla, blöðin tvö, ritstjóra þeirra og stöðu stjórnmála á tímanum sem um ræðir. Leitast er við að svara spurningunni um hvort flokksblaðamennska hafi haft áhrif á fréttaflutning blaðanna af utanríkismálum Íslands á tímabilinu og hvort umfjöllun þeirra hafi verið hlutdræg vegna flokkstengsla blaðanna tveggja. Mikilvægi hlutleysis fjölmiðla er haft að leiðarljósi við greiningu á umfjöllun Morgunblaðsins og Þjóðviljans um þessi mál og er fréttastefna RÚV höfð til viðmiðunar. Bornar eru saman fréttir og leiðarar blaðanna frá þessu tímabili og að auki er efni eftir ritstjóra Þjóðviljans og Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra skoðað nánar. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að flokksblaðamennska hafði greinileg áhrif á frásagnarmáta blaðanna og setur hún mark á umfjöllunina um þau málefni sem skoðuð voru. Blöðin töldu sig bæði hafa hagsmuni Íslendinga að leiðarljósi með skrifum sínum, en ástæðurnar fyrir skoðunum þeirra voru gjörólíkar. Stjórnmálaafstaða Þjóðviljans kemur skýrar fram en Morgunblaðsins og fóru Þjóðviljamenn ekki leynt með hana. Blöðin gagnrýndu hvort annað ákaft og leyndu ekki áliti sínu á andstæðum skoðunum hvors annars. Morgunblaðið og Þjóðviljinn höfðu einnig andstæða afstöðu til utanríkismála á þessum tíma og fer það ekki á milli mála við skoðun á umfjöllun þeirra og orðræðu frá þessum árum. This thesis focuses on the discourse and narrative of two Icelandic newspapers, Morgunblaðið and Þjóðviljinn, during the years 1949-1955, in their writings about the membership of Iceland of the North Atlantic Treaty Organisation (NATO) and the defence agreement with The United States of America which was made in 1951. News, ...