Að vita meira í dag en í gær : mikilvægi lestrarnáms

Verkefnið er lokað til 31.12.2028. Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2017. Í ritgerðinni er fjallað um mikilvægi lestrar og hvaða undirþætti þarf að styðjast við í lestrarnámi. Einnig verður komið inn á dyslexíu og hlutverk foreldra í le...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Mekkin Einarsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27872
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 31.12.2028. Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2017. Í ritgerðinni er fjallað um mikilvægi lestrar og hvaða undirþætti þarf að styðjast við í lestrarnámi. Einnig verður komið inn á dyslexíu og hlutverk foreldra í lestrarnámi barna sinna. Sagt verður frá kenningum Ehri um sjónrænan orðaforða og kenningu Gough um einfalda lestrarlíkanið. Báðar kenningarnar segja frá því hvernig lestrarferli barna þróast. Rannsóknir hafa sýnt að orðaforði og umskráning skipta miklu máli í lestrarnámi barna ásamt því að hafa góðan lesskilning. Einnig hefur verið sýnt fram á að börn sem hafa ekki nægilega sterka hljóðkerfisvitund eru líklegri til að greinast með dyslexíu. Til að einstaklingur teljist læs þarf hann að geta lesið fyrirhafnarlaust og skilið innihaldið í textanum. Því er mikilvægt að notast við góðar lestrarkennsluaðferðir. Farið verður í fjórar lestrarkennsluaðferðir sem byggjast á undirstöðuþáttum læsis. Foreldrar skipta miklu máli í lestrarnámi barna sinna og þurfa að styðja vel við bakið á þeim. Umhverfið sem barnið elst upp í skiptir einnig máli en sýnt hefur verið fram á að börn sem alast upp þar sem bækur eru sýnilegar og það er lesið fyrir þau, koma betur undirbúin þegar lestrarnám hefst í grunnskóla. Höfundur þessarar ritgerðar telur að mikilvægt sé að börn fái góða kennslu við lestrarnámið og að börn sem greinast með dyslexíu fái alla þá aðstoð sem þau þurfa á að halda. Allt nám byggir á lestri og er því mikilvægt að nemendur fái þá kennslu og þann stuðning sem þeir þurfa. This thesis is the final assignment towards a B.Ed. degree at the University of Akureyri, in the spring term of 2017. The paper discusses the importance of reading and which elements are required to support literacy. Points are made of dyslexia and the role of parents in their children's literacy. Both Ehri's theory of visual vocabulary and Gough's teaching of the simple reading model, will be presented. These theories both relate to the development of ...