Mikilvægi útikennslu á leikskólaárunum

Verkefnið er lokað til 10.4.2019. Viðfangsefni þessarar B.Ed. ritgerðar er útikennsla sem kennsluaðferð í leikskólum á Íslandi. Markmiðið með ritgerðinni er að varpa ljósi á mikilvægi útikennslu barna á leikskólaaldri. Við rannsóknina var notuð eigindleg aðferð og stutt úrvinnsla úr athugun. Ritgerð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jenný Lind Gunnarsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27868
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 10.4.2019. Viðfangsefni þessarar B.Ed. ritgerðar er útikennsla sem kennsluaðferð í leikskólum á Íslandi. Markmiðið með ritgerðinni er að varpa ljósi á mikilvægi útikennslu barna á leikskólaaldri. Við rannsóknina var notuð eigindleg aðferð og stutt úrvinnsla úr athugun. Ritgerðinni er skipt upp í þrjá megin kafla. Aðferðin útikennsla er skilgreind og fjallað er um gildi og mikilvægi útikennslu sem kennsluaðferðar. Síðan er fjallað um fjölbreytt námsumhverfi leikskólabarna, skipulag útináms og hvaða gerð af námsmati hentar best til að meta árangur barnanna í útikennslu. Í lokin er farið yfir námskenningar John Dewey, Lev Vygotsky og Jean Piaget. Námskenningarnar eru settar í samhengi við nýrri fræði og athugun úr ritgerð. Framkvæmd var stutt athugun á tíu leikskólabörnum á aldrinum fimm til sex ára, með það að markmiði að kanna hver þekking og reynsla þeirra væri af útikennslu. Niðurstöður voru þær að börnunum þótti gaman að fá að vera úti og njóta sín. Þeim þykir gaman að vera í útikennslu og þurfa kennarar að taka mið af því í kennslu barna á leikskólaaldri. Börnin þekktu ekki endilega hugtakið útikennslu sem slíkt en höfðu öll reynslu af útikennslu að einhverju leyti og höfðu gaman af og þótti hún gagnleg til náms. Ritgerðinni fylgir hugmyndasafn sem inniheldur átta kennsluáætlanir. Kennsluáætlanirnar átta eru byggðar á útikennsluverkefnum sem eiga það sameiginlegt að tengja saman leik, starf, fræði og Aðalnámskrá leikskóla. The subject of this essay is outdoor education in kindergartens in Iceland. The purpose of this essay is to highlight the importance of outside education for preschool aged children. The research method used was qualitative, including a summary from an observation. The essay is divided into three main chapters. Firstly, the term outdoor education is defined and its value and importance as a teaching method is discussed. Secondly, other related topics are discussed, such as the diversity of pre-schoolers learning environment, the structure of outdoor education as ...