Hækkandi algengi einhverfurófsraskana á Íslandi. Tengsl tölulegra niðurstaðna ADOS-2 og einstakra greiningarflokka

Rannsóknir hafa leitt í ljós að algengi einhverfu hefur farið hækkandi um allan heim síðan 1990. Nýjasta íslenska rannsóknin á algengi einhverfu sýndi 2,2%. Rannsóknin kunngerði ennfremur að aukningin er fyrst og fremst tilkomin vegna drengja sem greinast með bernskueinhverfu og með vitsmunaþroska n...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Thelma Rún van Erven 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27865
Description
Summary:Rannsóknir hafa leitt í ljós að algengi einhverfu hefur farið hækkandi um allan heim síðan 1990. Nýjasta íslenska rannsóknin á algengi einhverfu sýndi 2,2%. Rannsóknin kunngerði ennfremur að aukningin er fyrst og fremst tilkomin vegna drengja sem greinast með bernskueinhverfu og með vitsmunaþroska nálægt meðallagi. Niðurstöður rannsóknarinnar lýstu einnig aukinni notkun ADOS-2 en minnkaðri notkun ADI-R. Þessi rannsókn er liður í því að grennslast fyrir um hvað kann að valda auknu algengi einhverfu og var markmið hennar að skoða tengsl tölulegra niðurstaðna ADOS-2 og einstakra greiningarflokka ICD-10 fyrir raskanir á einhverfurófi. Einnig var kannað í hvaða tilfellum ADI-R var notað og í hvaða tilfellum börn komu í endurmat. Auk þess var athugað hvort skipulagsbreytingar á Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins (GRR) hafi haft áhrif á greiningu einhverfu. Þátttakendur voru 279 börn fædd á árunum 2006 til 2008 sem fóru í ADOS-2 athugun og voru greind með einhverfu á GRR fyrir árslok 2015. Eins og búist var við voru tengsl á milli þess hversu mikil einhverfueinkenni barn sýndi við ADOS-2 athugun og einhverfugreiningar: Eftir því sem stigafjöldi á ADOS-2 var hærri því alvarlegri var einhverfugreiningin. Eðli málsins samkvæmt var munur á aldri barnanna eftir því hvaða ADOS-2 eining var lögð fyrir, eining 1 var lögð fyrir yngstu börnin og eining 3 fyrir þau elstu. Jafnframt voru tengsl á milli þess hvaða ADOS-2 eining var notuð og einhverfugreiningar, þau börn sem eining 1 var lögð fyrir fengu oftar greininguna bernskueinhverfa. Stigafjöldi náði ekki greiningarmörkum á ADOS-2 hjá umtalsverðum hluta barnanna (18,7%). Alls fóru foreldrar 80 barna í ADI-R. Börn þeirra foreldra sem fóru í ADI-R voru eldri, höfðu hærri greindartölu og fengu oftar greiningarnar ódæmigerð einhverfa og Asperger heilkenni í samanburði við börn þeirra foreldra sem fóru ekki í ADI-R. Alls komu 65 börn í endurmat. Þau börn sem komu í endurmat fengu gjarnan vægari einhverfugreiningu við fyrstu komu. Þau voru einnig yngri og höfðu hærri greindartölu ...