Á sömu leið: Samvinna heimilis og skóla í lestrarnámi barna

Lokaritgerð þessi er hluti B.Ed prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2017. Ritgerðin fjallar um hvernig hægt er að styðja við nemendur í lestrarnámi með samvinnu heimilis og skóla. Að kennarar og foreldrar þurfi að vinna saman að lestrarnámi barna og stefna að sömu markmiðum. Bæði kenna...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðný Björg Bjarnadóttir 1972-, Hildur Hjaltadóttir 1975-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27864
Description
Summary:Lokaritgerð þessi er hluti B.Ed prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2017. Ritgerðin fjallar um hvernig hægt er að styðja við nemendur í lestrarnámi með samvinnu heimilis og skóla. Að kennarar og foreldrar þurfi að vinna saman að lestrarnámi barna og stefna að sömu markmiðum. Bæði kennarar og foreldrar þurfa að vera meðvitaðir um sína ábyrgð til þess að lestrarnámið gangi sem best fyrir sig. Í kafla tvö er fjallað um hugtökin læsi og lestur, einnig er farið í lesfimi, orðaforða, lesskilning og ritun. Hugtakið læsi vísar til þess að þættir tungumálsins séu samofnir og styðji hver annan en lestur vísar í þegar lesandi les texta og notar til þess það tungumál sem hann kann. Í þriðja kafla er talað um tileinkun læsis og skoðað er bernskulæsi, áhrif umhverfisþátta og tilgangur lestrarnáms. Bernskulæsi er sú færni, kunnátta og viðhorf sem þroskast áður en hið eignlega lestrarnám hefst. Lestrarfærni er undirstaða alls náms og góð lestrarfærni auðveldar þátttöku í samfélaginu. Læsisríkt umhverfi er mikilvægt til að auðvelda börnum læsi og læsisvitund. Fjórði kafli er um samvinnu heimilis og skóla, hvert er hlutverk foreldra og hvaða leiðir þeir geta farið til að aðstoða börn sín í náminu og mikilvægi þess að skólinn komi til móts við alla foreldra á jafnréttisgrundvelli. Farið er í tilgang heimalesturs og lestrarhvetjandi leiðir skoðaðar sem bæði foreldrar og kennarar geta nýtt sér. Fram kemur í ritgerðinni að skiptar skoðanir eru um heimanám barna en allir eru sammála um mikilvægi heimalesturs. Það er barninu fyrir bestu að ná tökum á lestrinum eins fljótt og auðið er vegna þess að námið verður erfiðara þegar á líður og kröfur um lestur og skilning verða meiri. Þegar allt kemur til alls er mikilvægt að allir séu á sömu leið og samvinna sé á milli heimilis og skóla. This thesis is towards a B.Ed. degree from the Faculty of Education at the University of Akureyri in spring 2017. It discusses ways in which to support students who are learning to read by way of co-operation between the school and the home, ...