Summary: | Markmið þessa verkefnis var að þróa fjórar nýjar vörur fyrir geoSilica, þar sem þróun var byggð á fræðilegum rannsóknum á virkni steinefna. Vörurnar þurftu að uppfylla reglugerðir um fæðubótarefni, og þau skilyrði sem sett voru fyrir af geoSilica. Vörurnar eru allar unnar út frá þeirri grunnvöru sem nú þegar er á markaði, og þurftu þær að vera þægilegar til inntöku, bæði þegar kom að bragði og áferð. Skammtastærðir voru einnig unnar út frá fræðilegum grunni, þar sem tekið var tillit til könnunar á matarræði Íslendinga, og bæði hámarks og lágmarks næringarviðmiðum. Einnig var forkönnun á fýsileika úrvinnslu valinna steinefna úr jarðhitavökva gerð, sem grunnur fyrir mögulegum frekari rannsóknum á úrvinnslu. geoSilica
|