Greining á komufjölda á bráðamóttökur Landspítala og mat á áhrifum veðurs

Markmið þessa verkefnis var að gera grein fyrir árstíða- og vikusveiflum í komufjölda á bráðamóttökur Landspítala og meta áhrif veðurs á komufjölda. Skoðaðar voru fjórar bráðamóttökur; bráðamóttakan í Fossvogi, bráðamóttaka Barnaspítala Hringsins, Hjartagátt og bráðaþjónusta geðsviðs. Þær veðurbreyt...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stella Kristín Hallgrímsdóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27776
Description
Summary:Markmið þessa verkefnis var að gera grein fyrir árstíða- og vikusveiflum í komufjölda á bráðamóttökur Landspítala og meta áhrif veðurs á komufjölda. Skoðaðar voru fjórar bráðamóttökur; bráðamóttakan í Fossvogi, bráðamóttaka Barnaspítala Hringsins, Hjartagátt og bráðaþjónusta geðsviðs. Þær veðurbreytur sem mest voru skoðaðar eru hitastig, vindhraði, úrkoma og skýjahula. Líkt var eftir árstíðasveiflum með sínus- og kósínusbylgjum og með hjálp línulegrar aðhvarfsgreiningar var búin til breyta sem lýsir árstíðasveiflum og línulegri aukningu í komufjölda. Smíðuð voru ARIMA spálíkön fyrir komufjölda á bráðamóttökuna í Fossvogi og bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins. Til að meta hvort veður hafi áhrif á komufjölda á bráðamóttökur var veðurbreytum bætt inn í spálíkan og skoðað hvaða áhrif það hafði á mát- og spágæði líkansins. Einnig var höfuðþáttagreiningu beitt til að taka veðurbreytur saman og búa til nýjar breytur sem lýsa ákveðnum veðurgerðum. Þessum nýju breytum var einnig bætt inn í spálíkön til að meta áhrif þeirra á gæði líkansins. Niðurstöður sýna að upplýsingar um veður bæta spá um komufjölda á bráðamóttökunni í Fossvogi lítillega en auka staðalspáskekkju á bráðamóttöku barna. Það á bæði við um þegar hver veðurbreyta er skoðuð fyrir sig sem og þegar veðurbreytur hafa verið teknar saman með höfuðþáttagreiningu. Því má draga þá ályktun að veður hafi ekki áhrif á komufjölda á bráðamóttöku barna en hafi minniháttar áhrif á komufjölda á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. Ennfremur sýna niðurstöður að hægt sé að þróa gott spálíkan fyrir komufjölda á bráðamóttökur Landspítala einungis með upplýsingum um árstíða- og vikusveiflur. The objective of this project was to study the seasonal and weekly fluctuations in number of arrivals to the emergency departments of the University Hospital of Iceland and also to assess the influence of weather on the number of arrivals. Four emergency departments were examined; the Emergency Department in Fossvogur, the Emergency Unit in the Children‘s Hospital Department, Hjartagátt ...