Neyslurými. Af hverju og hvernig?

Umfjöllunarefni þessarar fræðilegu samantektar eru neyslurými fyrir einstaklinga sem neyta vímuefna um æð. Talið er að á Íslandi séu um 700 einstaklingar í virkri neyslu vímuefna um æð en þeir eru yfirleitt bæði líkamlega og andlega veikari en þeir sem glíma við annars konar vímuefnasjúkdóma. Á ári...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Edda Rún Kjartansdóttir 1990-, Þórunn Hanna Ragnarsdóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27754
Description
Summary:Umfjöllunarefni þessarar fræðilegu samantektar eru neyslurými fyrir einstaklinga sem neyta vímuefna um æð. Talið er að á Íslandi séu um 700 einstaklingar í virkri neyslu vímuefna um æð en þeir eru yfirleitt bæði líkamlega og andlega veikari en þeir sem glíma við annars konar vímuefnasjúkdóma. Á ári hverju deyja 12-13 einstaklingar í neyslu vímuefna um æð á Íslandi en einstaklingar undir 30 ára sem eru í neyslu vímuefna um æð eru í 30 sinnum meiri hættu á ótímabærum dauðdaga en jafnaldrar þeirra. Tilgangur samantektarinnar var að skoða persónulegan-, samfélagslegan- og fjárhagslegan ávinning af neyslurýmum og hvort grundvöllur væri fyrir opnun slíks úrræðis hérlendis. Neyslurými eru skaðaminnkandi úrræði sem finnast víða í Evrópu, Kanada og í Ástralíu en árið 2016 voru 77 neyslurými starfrækt á þessum stöðum. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á marktækan árangur þeirra við að draga úr heilsufarslegum afleiðingum vímuefnanotkunar, samfélagslegu ónæði sem óneitanlega getur orðið vegna hennar og kostnaði fyrir heilbrigðiskerfið. Tilgangur neyslurýma er að ná til einstaklinga sem stunda áhættuhegðun og skapa þeim umhverfi þar sem hægt er að neyta vímuefna við öruggar og heilsusamlegar aðstæður og draga úr ónæði og afleiðingum tengdum vímuefnaneyslu á almannafæri. Fjallað verður um heilsufarslegar afleiðingar vímuefnaneyslu og uppsetningu, markmið og markhóp neyslurýma. Auk þess verður umfjöllun um vettvangskönnun höfunda í tvö neyslurými í Kaupmannahöfn. Mannréttindi eru ekki forréttindi og einstaklingar sem nota vímuefni hafa hvorki fyrirgert mannréttindum sínum né þeim rétti að lifa við bestu mögulegu heilsu miðað við aðstæður og geta neyslurými tryggt þeim þá þjónustu sem þeir þurfa. The focus of this literature review is drug consumption rooms for intravenous drug users. The estimated amount of active intravenous drug users in Iceland is around 700 people. These individuals are in both poorer physical and mental health than other drug users. Each year twelve to thirteen individuals in Iceland pass away due ...