Bakgrunnsþættir og mataræði unglinga

Bakgrunnur: Mataræði er áhrifaþáttur í heilsu og þroska barna og unglinga og hefur mataræði þeirra verið mikið rannsakað erlendis en á Íslandi virðist vera lítið um rannsóknir á því sviði. Tilgangur: Tilgangur þessa verkefnis var að skoða nánar hvort það er samband á milli mataræðis unglinga og bakg...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Steinunn Ruth T. Guðmundsdóttir 1987-, Berglind St. Eysteinsdóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27725
Description
Summary:Bakgrunnur: Mataræði er áhrifaþáttur í heilsu og þroska barna og unglinga og hefur mataræði þeirra verið mikið rannsakað erlendis en á Íslandi virðist vera lítið um rannsóknir á því sviði. Tilgangur: Tilgangur þessa verkefnis var að skoða nánar hvort það er samband á milli mataræðis unglinga og bakgrunns þeirra, það er kynferðis, efnahags fjölskyldunnar, fjölskyldugerðar og búsetu. Aðferð: Rannsóknarverkefnið var byggt á landskönnun sem var gerð á árunum 2013-2014 í grunnskólum á Íslandi. Alls svöruðu 3.514 nemendur í 10. bekk spurningalista í bekkjarstofunni og var svarhlutfallið 80,8%. Úrvinnsla gagna var gerð með tölvuforritinu SPSS. Niðurstöður: Marktækur munur var á mataræði unglinga eftir kynferði, landshlutum og fjölskyldugerð. Fiskneysla unglinga var meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Flestir unglingar bjuggu við miðlungs efnahagsstöðu. Unglingar sem bjuggu hjá báðum foreldrum sínum neyttu oftar morgunverðar að minnsta kosti fimm virka daga vikunnar en þeir unglingar sem bjuggu hjá einstæðu foreldri. Unglingar á höfuðborgarsvæðinu neyttu oftar morgunverðar að minnsta kosti fimm virka daga vikunnar en þeir sem bjuggu á landsbyggðinni. Ályktun: Hjúkrunarfræðingar í skólahjúkrun og á heilsugæslustöðvum hafa tækifæri til að koma að fræðslu og forvörnum til að stuðla að bættu mataræði og heilbrigði unglinga. Sérstakan gaum þarf að gefa þeim einstaklingum og hópum unglinga þar sem minna er um gott mataræði. Lykilorð: Mataræði unglinga, félags- og efnahagsleg staða, fjölskyldugerð, búseta, heilbrigðar venjur. Background: Diet is a contributing factor in child and adolescent health and development. Children’s and adolescents' eating habits have been widely studied outside of Iceland but the domestic literature is limited. Purpose: The goal of this study was to examine more closely wether there is a relationship between adolescents' eating habits and individual and family background, i.e. gender, family structure, family affluence, and residence. Methods: The study was based on a national survey ...