Efnisval tannplantastuddra tanngerva á Íslandi

Tilgangur: Markmið rannsóknar er að kanna stöðu tannplantafastra og tannplantastuddra tanngerva á Íslandi frá sjónarhorni tannsmiða, hvaða efni mest er unnið með, hindranir og vandamál sem tannsmiðir hér á landi þurfa að takast á við. Undirmarkmið er að kanna mögulegar lausnir við þeim vandamálum. A...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rakel Ásta Sigurbergsdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27724
Description
Summary:Tilgangur: Markmið rannsóknar er að kanna stöðu tannplantafastra og tannplantastuddra tanngerva á Íslandi frá sjónarhorni tannsmiða, hvaða efni mest er unnið með, hindranir og vandamál sem tannsmiðir hér á landi þurfa að takast á við. Undirmarkmið er að kanna mögulegar lausnir við þeim vandamálum. Aðferðir: Megindleg aðferðafræði var notuð og rafrænn spurningalisti sem innihélt tuttugu spurningar. Spurningakönnun var send meðlimum í Tannsmiðafélagi Íslands. Forritið SurveyMonkey var notað til að halda utan um spurningakönnun og Microsoft Excel var notað við gagnaúrvinnslu. Lýsandi tölfræði var notuð í útreikningum og í túlkun niðurstaðna. Niðurstöður: Svarhlutfall var 32,5% (n = 27), þar af 25,9% karlar (n = 7) og 74,1% konur (n = 20). Flestir þátttakendur voru á aldrinum 40-49 ára (40,7%, n = 11). Algengasti starfsaldur þátttakenda var 30 ár eða lengur (22,2%, n = 6). Meirihluti þátttakenda var sjálfstætt starfandi (60,9%, n = 14). Óalgengt var að tannsmiðir fengju beiðni um gerð á stýriskinnu frá tannlækni. Algengast var að tannsmiðir og tannlæknar tækju ákvarðanir í sameiningu varðandi hönnun á krónu- eða brúarsmíði og við hönnun ásetugóma á tannplanta. Það var algengara að krónur og tannplantabrýr væru skrúfaðar en límdar. Algengast var að nota CAD/CAM titanium stoðliði. Zirconium var mest notaða efnið við gerð á krónum og brúm bæði á framtanna- og jaxlasvæði. Locator kerfið var algengasta festingakerfið fyrir ásetugóma á tannplöntum (85,7%, n = 18). Allir þátttakendur nema þrír höfðu glímt við vandamál við hönnun króna og brúa á tannplanta. Helsta vandamálið var að staðsetning eða afstaða tannplanta í tannboga var óæskileg, allir þátttakendur höfðu glímt við það vandamál. Óalgengt var að postulínskrónur og brýr kæmu í viðgerð vegna þess að kvarnast hefði úr postulíni. Aðspurðir hvað væri hægt að gera til að sporna við vandamálum sem tannsmiðir hér á landi glíma við voru flestir sem sögðu þörf fyrir að skipuleggja verkefnin mun betur og auka notkun á stýriskinnum. Ályktun: Mikilvægt er að bæta skipulagningu ...