Lítill gluggi til heimsins. Ágrip af sögu Haraldarbúðar í Reykjavík 1915-1960.

Haraldarbúð var merkileg verslun sem var til húsa í hinu sögufræga húsi Austurstræti 22 í Reykjavík. Verslunin starfaði á árunum 1915-1960 og saga hennar spannar því 45 ár. Reksturinn gekk að mestu leyti vel en erfiðar efnahagsaðstæður gerðu verslunum á þessum tíma oft erfitt fyrir. Það var ekki fyr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Linda Björk Ólafsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/2772
Description
Summary:Haraldarbúð var merkileg verslun sem var til húsa í hinu sögufræga húsi Austurstræti 22 í Reykjavík. Verslunin starfaði á árunum 1915-1960 og saga hennar spannar því 45 ár. Reksturinn gekk að mestu leyti vel en erfiðar efnahagsaðstæður gerðu verslunum á þessum tíma oft erfitt fyrir. Það var ekki fyrr en eftir eftir andlát stofnandans, Haraldar Árnasonar, 1949 sem rekstrinum tók að hnigna af ýmsum ástæðum. Haraldarbúð hafði yfir sér einstaklega alþjóðlegan blæ, vörur sem hún hafði á boðstólum voru sérstaklega vandaðar og eftir tísku síns tíma. Verslunin var einkum skilgreind sem vefnaðarvöruverslun en bauð þó upp á ýmsar aðrar vörur og skiptist í nokkrar deildir líkt og vöruhús erlendis. Fjölbreytt vöruúrval, vöruvöndun og gott starfsfólk gerðu það að verkum að verslunin varð rótgróin og hafði mikinn sess í hugum Reykvíkinga. Stofnandi verslunarinnar, Haraldur Árnason, þótti mörgum góðum kostum búinn og var vinsæll maður í samfélaginu. Hann hafði mikinn metnað til að gera verslun sína eins vel úr garði og unnt var og lagði kapp á að selja vandaðar vörur frá mörgum löndum, á meðan aðstæður í þjóðfélaginu buðu upp á það. Haraldur hafði starfað og menntað sig í verslunarfræðum í Englandi og lagði því frá upphafi einna mesta áherslu á að versla með breskar vörur. Honum tókst að gera verslun sína að eins konar glugga sem gerði Reykvíkingum og öðrum viðskiptamönnum hans mögulegt að fá sýn á klæðaburð og fatatísku í nágrannalöndunum og bjóða þeim upp á gæðavörur til kaups. Þannig átti Haraldarbúð drjúgan hlut í því að þróa einn þáttinn í bæjarmenningu Reykjavíkur.