Sálrænn og félagslegur stuðningur við kvótaflóttafólk á Íslandi 2005-2017 á vegum Reykjavíkurborgar: 2005 og 2007 árgangar

Tilgangur rannsóknar var að kortleggja hvernig sálrænn og félagslegur stuðningur við flóttafólk hefur nýst með því að gera verklagsúttekt á þjónustu Reykjavíkurborgar við kvótaflóttafólk sem kom til Íslands frá Kólumbíu árin 2005 og 2007 (konur í hættu og börn þeirra). Gerð var grein fyrir stuðningi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Áslaug Ormslev 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27719
Description
Summary:Tilgangur rannsóknar var að kortleggja hvernig sálrænn og félagslegur stuðningur við flóttafólk hefur nýst með því að gera verklagsúttekt á þjónustu Reykjavíkurborgar við kvótaflóttafólk sem kom til Íslands frá Kólumbíu árin 2005 og 2007 (konur í hættu og börn þeirra). Gerð var grein fyrir stuðningi við kólumbísku fjölskyldurnar í gegnum árin til að sjá hvernig aðlögun að íslensku samfélagi hefur tekist, en flóttafólk almennt glímir við fjölþættan vanda. Gögnum var aflað úr málaskrá, auk þess sem spurningakönnun var send á ráðgjafa Velferðarsviðs í von um að skýra myndina af því hvernig stuðningur nýttist. Niðurstöður sýndu að tæpur helmingur kvenna fór í sálfræðiviðtöl á innan við tveimur árum frá komu. Fimm konur virðast enga sálfræðiaðstoð hafa fengið. Helsti sálræni vandi kvennanna reyndist vera þunglyndi, þá kvíði og samskiptavandi. Sálfræðingar höfðu aðkomu að tæpum 40% barnahópsins. Nokkuð var um tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur. Starfsmenn velferðarsviðs fóru inn á heimili fjölskyldna í gegnum úrræðin tilsjón og stuðninginn heim og veittu uppeldisráðgjöf og stuðning við mæður. Börn nutu góðs af persónulegum ráðgjafa og stuðningsfjölskyldum. Félagsleg staða hópsins er þó almennt fremur bág árið 2017 en konurnar virðast standa utan við samfélagið þegar kemur að stöðu á vinnumarkaði, húsnæðismarkaði og fleira. Með því að útlista hvernig megi bæta félagsþjónustu aukast líkur á því að hægt sé að þróa langtímastefnu í málefnum flóttafólks og tryggja þessum viðkvæma hópi sem besta þjónustu og stuðning. The aim of the research is to shed light on Reykjavik´s Department of Welfare´s work with resettlement refugees. More specifically, it aimed at exploring how psychological and social support services are carried out in the process of assisting refugees in their resettlement process. A procedural analysis on Reykjavik´s Department of Welfare´s support work with Colombian refugees was made, all of whom resettled in Iceland in 2005 and 2007. All refugees were single women with children, identified as ...