Meðgöngusykursýki: áhættuþættir og fyrirbygging

Meðgöngusykursýki (MGS) er einn algengasti fylgikvilli meðgöngu og nýjustu rannsóknir um tíðni MGS gefa til kynna að tilfellum fari sífellt fjölgandi í heiminum. Á Íslandi eru konur skimaðar við 24.-28. viku meðgöngu og er skimunin framkvæmd með svokölluðu 75g sykurþolsprófi hjá konum sem eru með ei...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hugrún Eva Valdimarsdóttir 1990-, Lilja Kristín Guðjónsdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27713
Description
Summary:Meðgöngusykursýki (MGS) er einn algengasti fylgikvilli meðgöngu og nýjustu rannsóknir um tíðni MGS gefa til kynna að tilfellum fari sífellt fjölgandi í heiminum. Á Íslandi eru konur skimaðar við 24.-28. viku meðgöngu og er skimunin framkvæmd með svokölluðu 75g sykurþolsprófi hjá konum sem eru með einn eða fleiri áhættuþætti til staðar. Meðferð við MGS byggir helst á lífsstílsbreytingum, hollu mataræði og hreyfingu. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að afla þekkingar um MGS, áhættuþætti þess og hvort mögulegt sé að fyrirbyggja þennan kvilla. Heimildasöfnun fór fram í gegnum erlenda gagnagrunna og bækur. Við lestur heimilda og nýjustu rannsókna var einnig hugsað til þess hvernig mögulega væri best að standa að fyrirbyggingu hér á landi og hvert algengi MGS er í heiminum. Helstu niðurstöður sýndu að áhættuþættir MGS væru hár aldur móður, ofþyngd og offita, fyrri fæðing þungbura (yfir 4500g), skert sykurþol fyrir þungun, fjölskyldusaga um sykursýki og kynþáttur annar en hvítur. Einnig sýndu niðurstöður að helsta leiðin til fyrirbyggingar á MGS sé að stunda létta hreyfingu fyrir meðgöngu og á fyrstu vikum hennar auk þess að tileinka sér hollt mataræði. Hjúkrunarfræðingar eru í kjörstöðu til að fræða konur á barneignaraldri um MGS, fyrirbyggingu og þá kvilla sem fylgt geta í kjölfarið. Fræðslan er mikilvæg til að minnka kvíða og sjálfsásakanir kvenna sem fá greiningu á MGS auk þess sem fræðsla getur verið hvati fyrir konur til að breyta um lífsstíl og stuðla þannig að heilbrigði sínu og ófædds barns síns. Það er því mikilvægt fyrir hjúkrunarfræðinga að hafa þekkingu á MGS, þeim fylgikvillum sem upp geta komið í kjölfarið og þeim þáttum sem hægt er að horfa til við fyrirbyggingu MGS. Lykilorð: Meðgöngusykursýki, fyrirbygging, áhættuþættir, fylgikvillar, offita, þyngdaraukning, hreyfing, mataræði, hjúkrun. Gestational diabetes mellitus (GDM) is one of the most common complications of pregnancy. The latest research on the frequency of GDM indicates that cases are constantly increasing worldwide. In Iceland, ...