Afþreying er framtíðin. Rannsókn á útgjöldum ferðamanna til afþreyingar á Húsavík, Mývatnssveit, Siglufirði og Höfn

Markmið þessarar rannsóknar er að skoða útgjöld ferðamanna til afþreyingar á fjórum rannsóknarsvæðum, Húsavík, Mývatnssveit, Siglufirði og Höfn. Rannsóknamiðstöð ferðamála ásamt fleiri aðilum stóð fyrir spurningakönnun á svæðunum sumarið 2015 þar sem ferðahegðun erlendra ferðamanna var skoðuð og er...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Ásgeirsdóttir 1970-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27679
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar er að skoða útgjöld ferðamanna til afþreyingar á fjórum rannsóknarsvæðum, Húsavík, Mývatnssveit, Siglufirði og Höfn. Rannsóknamiðstöð ferðamála ásamt fleiri aðilum stóð fyrir spurningakönnun á svæðunum sumarið 2015 þar sem ferðahegðun erlendra ferðamanna var skoðuð og er þessi rannsókn unnin upp úr þeim gögnum. Á síðustu árum og áratugum hefur ferðaþjónusta á svæðunum og annarsstaðar á Íslandi tekið töluverðum breytingum þar sem ferðamenn eru orðnir öðruvísi neytendur, með aðrar væntingar til ferðalaga. Þeir vilja dýpri upplifun í ferðalögum sínum og í auknum mæli komast nær menningu ferðamannastaða og daglegu lífi heimamanna. Á svæðunum fjórum er rekin margvísleg ferðaþjónusta en markmið rannsóknarinnar er að skoða afþreyingu fyrir ferðamenn sérstaklega. Afþreying er vítt hugtak og innan þess rúmast margskonar athafnir sem ferðamenn taka þátt í og ýmist gegn greiðslu eða ekki. Í rannsókninni er horft til afþreyingar bæði með og án greiðslu. Til að greina betur þátt afþreyingar á svæðunum eru útgjöld ferðamanna til afþreyingar skoðuð og þau greind eftir bakgrunni og dvalartíma þeirra. Samanburður er líka gerður á milli rannsóknarsvæðanna. Niðurstöður greininganna eru þær að ferðamenn eru með hæstu útgjöld til afþreyingar á Húsavík. Einnig komu fram marktæk tengsl á milli útgjalda til afþreyingar og dvalartíma en ferðamennirnir voru með hærri útgjöld eftir því sem þeir dvöldu lengur á svæðunum. Má því draga þá ályktun að afþreying sé mikilvægt aðdráttarafl í ferðaþjónustu og góð tekjulind. Lykilorð ritgerðar: afþreying, útgjöld, dvalartími, ferðaþjónusta, ferðamennska, dreifbýli. The objective of this study is to review the expenses of tourists for recreation in four research areas, Húsavík, Mývatnssveit, Siglufjörður and Höfn. The Icelandic Tourism Research Center in association with other beneficial entities carried out a surway in these 4 areas in the summer of 2015, where the consumer behavior of foreign tourists was examined and this study is based on this data. In recent years ...