Faraldsfræði gauklasjúkdóma og afdrif sjúklinga á Íslandi: Lýðgrunduð rannsókn,1983-2002

Inngangur: Faraldsfræði gauklasjúkdóma (GS) hefur ekki verið rannsökuð á Íslandi, en þekkt er að tíðni þeirra er breytileg milli landa. Gauklasjúkdómar geta leitt til lokastigsnýrnabilunar (LSNB) og dauða, en rannsóknir á framvindu eru mjög takmarkaðar. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna faralds...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Konstantín Shcherbak, 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27623
Description
Summary:Inngangur: Faraldsfræði gauklasjúkdóma (GS) hefur ekki verið rannsökuð á Íslandi, en þekkt er að tíðni þeirra er breytileg milli landa. Gauklasjúkdómar geta leitt til lokastigsnýrnabilunar (LSNB) og dauða, en rannsóknir á framvindu eru mjög takmarkaðar. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði og framrás GS á Íslandi, meta þætti sem hafa áhrif á sjúkdómsframvindu og athuga hvort breyting hafi orðið á tíðni einstakra sjúkdóma. Aðferðir: Þetta var afturskyggn, lýðgrunduð rannsókn á einstaklingum sem greindust með GS með nýrnasýnistöku á árunum 1983-2002. Leitað var að öllum nýrnasýnum með greininguna GS í gagnagrunni meinafræðideildar Landspítala. Greining var byggð á niðurstöðu rannsóknar á nýrnasýni og klínískum þáttum. Upplýsingar um klínísk atriði og afdrif sjúklinga voru fengnar úr sjúkraskrám, Íslensku nýrnabilunarskránni og Þjóðskrá. Við tölfræðilega greiningu var notast við samanburð hópa, fylgni og áhættuþátta- og lifunargreiningu. Niðurstöður: Tíðni nýrnasýnatöku þar sem um var að ræða aðra sjúkdóma en krabbamein reyndist 10,5/100.000/ári. Nýrnasýni sem innihéldu breytingar er samrýmdust GS voru frá 281 einstaklingi og leiddu til 286 sjúkdómsgreininga. Nýgengi GS var 5,5/100.000/ári. Miðgildi aldurs við greiningu var 46 ár (spönn, 1-86 ár) og karlar voru 54%. Nýgengi algengustu undirflokka GS var (á hverja 100.000/ári): IgA-nýrnamein (IgAN) 1,4; staðbundið og geirabundið gauklahersli (focal segmental glomerulosclerosis) 0,5; og sykursýkisnýrnamein 0,5. Nýgengi himnugauklameins (membranous nephropathy) var 0,3/100.000/ári. Hjá börnum var örsær gauklakvilli (minimal change disease) algengastur (24%) og hjá yngri fullorðnum (15-64 ára) IgAN (34%). Hjá eldri fullorðnum (≥65 ára) voru sykursýkisnýrnamein og smáæðabólga jafnalgeng (12%). Tíðni nýrnasýnatöku jókst um 80% á rannsóknartímabilinu. Nýgengi GS jókst um 42% á milli fyrra og seinna 10 ára rannsóknartímabilsins og nýgengi GS meðal eldri fullorðinna tvöfaldaðist. Tíðni einstaka GS jókst í samræmi við hækkandi tíðni nýrnasýnatöku. Tíu ára ...