Streita, bjargráð og iðja unglinga : í 10. bekk á Norðurlandi eystra og í Reykjavík

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í flóknum nútímasamfélögum er hraðinn mikill og margir valmöguleikar í boði sem geta stuðlað að streitu hjá unglingum. Á unglingsárunum eiga sér líka stað miklar líkamlegar, tilfinningalegar og félagslegar breytingar. Rannsóknir sýna að...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ásbjörg Magnúsdóttir, Svanhildur Pála Pétursdóttir, Valdís Guðbrandsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2002
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/276
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Í flóknum nútímasamfélögum er hraðinn mikill og margir valmöguleikar í boði sem geta stuðlað að streitu hjá unglingum. Á unglingsárunum eiga sér líka stað miklar líkamlegar, tilfinningalegar og félagslegar breytingar. Rannsóknir sýna að streita getur haft áhrif á vellíðan, félagslega aðlögun og heilsu unglinga. Auk þess bendir margt til þess að það skipti máli hvernig þeir takast á við streituvaldandi aðstæður. Streita, streituvaldar og bjargráð eru víxlverkandi þættir sem hafa áhrif á lífsgæði einstaklinga. Tilgangur þessarar rannsóknar var þríþættur. Í fyrsta lagi að kanna streitueinkenni, streituvalda og bjargráð unglinga í 10. bekk í Reykjavík og í litlum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra. Skoðað var hvort munur væri á milli landshluta annars vegar og kynja hins vegar varðandi fyrrnefnd atriði. Í öðru lagi að skoða hvers konar iðju viðkomandi unglingar stunda. Í þriðja lagi að kanna hvort gátlisti Stein um streitustjórnun (Stress management questionnaire, SMQ), nýtist iðjuþjálfum í vinnu með unglingum hér á landi. Í rannsókninni var lagður fyrir Gátlisti um streitu og bjargráð. Megindleg rannsóknaraðferð var notuð og unnið úr gögnum með lýsandi og ályktunartölfræði. Þyrpingsúrtak var valið úr þýði allra nemenda í 10. bekk grunnskóla Reykjavíkur og í litlum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra. Rannsóknin náði til 281 nemenda og af þeim tóku 196 þátt (69,7%). Kvíði og einbeitingarskortur reyndust algengustu streitueinkennin, vera óundirbúinn fyrir t.d. próf og spurningar í tíma voru algengustu streituvaldarnir og að hlusta á tónlist kom oftast fyrir sem bjargráð við streitu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að engin munur var á streitueinkennum, streituvöldum né bjargráðum unglinga í litlum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra og í Reykjavík, en munur fannst á milli kynja á nokkrum þáttum. Frítíma sínum vörðu unglingar helst með vinum sínum, þeir stunduðu íþróttir, hlustuðu á tónlist, horfðu á sjónvarp eða voru í tölvu. Þátttakendur höfðu einna ...