Sýkingar hjá 18 mánaða börnum á Íslandi

Inngangur: Sýkingar eru algeng orsök veikinda, sérstaklega hjá börnum. Öndunarfærasýkingar eru ein algengasta orsök komu á heilsugæslu á Íslandi en iðrakveisur eru einnig algengar. Kvef er algengasta öndunarfærasýkingin bæði hjá börnum og fullorðnum. Bráðamiðeyrnabólga er einnig algeng í börnum og e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Margrét Viðarsdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27546
Description
Summary:Inngangur: Sýkingar eru algeng orsök veikinda, sérstaklega hjá börnum. Öndunarfærasýkingar eru ein algengasta orsök komu á heilsugæslu á Íslandi en iðrakveisur eru einnig algengar. Kvef er algengasta öndunarfærasýkingin bæði hjá börnum og fullorðnum. Bráðamiðeyrnabólga er einnig algeng í börnum og er algeng ástæða sýklalyfjaávísunar. Endurteknar bráðamiðeyrnabólgur leiða oft til ísetningar hljóðhimnuröra. Erlendar rannsóknir á veikindamynstrum í samfélaginu og notkun heilbrigðisþjónustu hafa leitt í ljós að meirihluti veikinda á sér stað utan heilbrigðisstofnanna og margir upplifa veikindi án þess að leita læknis. Fáar rannsóknir eru til um sýkingar ungbarna utan heilbrigðisgeirans hér á landi. Markmið þessarar rannsóknar var því að rannsaka með framvirkum hætti sýkingar meðal 18 mánaða barna á Íslandi og helstu úrræði við þeim. Efniviður og aðferðir: Foreldrum sem komu með börnin sín í 18 mánaða skoðun á heilsugæsluna var boðið að taka þátt í rannsókninni. Foreldrarnir svöruðu spurningalista um ýmislegt er tengdist fjölskylduhag og heilsufarssögu barnsins. Auk þess skráðu foreldrarnir með framvirkum hætti í dagbók, dag fyrir dag, í einn mánuð öll sýkingaeinkenni barns auk upplýsinga um fjarveru foreldris frá skóla og vinnu, læknisheimsóknir, sýklalyf og heilsufar annarra fjölskyldumeðlima. Rannsóknin fór fram á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum. 250 börn tóku þátt og alls náði skráningin yfir 7691 dag, flestir yfir vetrarmánuðina. Niðurstöður: Alls fengu 93,2% barnanna sýkingaeinkenni á einum mánuði, 38,6% (96/249) barna leituðu til læknis og eitt barn (0,4%) var lagt inn á spítala. Veikindi talin í dögum reyndust 36,3% (2788/7691). Ómarktæk hneigð var í þá átt að börn sem ættu ekki systkini, börn með ofnæmi og börn háskólamenntaðra mæðra væru líklegri til að leita læknis. Börn af höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til að leita læknis en börn af landsbyggðinni. Öndunarfærasýking var algengasta ástæða læknisheimsóknar. Kvef var algengasta sýkingaeinkennið ...