Einmanaleiki aldraðra : upprifjun minninga sem hjúkrunarmeðferð

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi heimildasamantekt var unnin upp úr greinum sem fengnar voru á Medline, AARP ageline, PubMed, Proquist 5000, Cinahl og Journal@ovid.full text á veraldarvefnum. Tilgangur heimildasamantektarinnar var að skoða hugtakið einmanaleiki me...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/274
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þessi heimildasamantekt var unnin upp úr greinum sem fengnar voru á Medline, AARP ageline, PubMed, Proquist 5000, Cinahl og Journal@ovid.full text á veraldarvefnum. Tilgangur heimildasamantektarinnar var að skoða hugtakið einmanaleiki með aldraða einstaklinga í huga og leitast við að finna svör við þeirri spurningu hvort sérhæfð meðferðarform geti dregið úr þeirri vanlíðan sem einmanaleiki veldur hinum öldruðu. Niðurstöður heimildasamantektarinnar voru þær að lítið hefur verið fjallað um einmanaleika meðal aldraðra almennt innan hjúkrunarstéttarinnar. Niðurstöður rannsóka benda til að jákvæð félagsleg samskipti séu mikilvægur þáttur sem bæti líðan og lini þjáningar sem fylgja einmanaleikanum. Við lestur heimilda kom í ljós að upprifjun minninga sem meðferðarform er talsvert notað af fagfólki sem kemur að umönnun aldraðra. Þáttur hjúkrunarfræðinga og skynjun þeirra og skilningur á vandamálinu einmanaleiki er mikilvægur þegar þessu meðferðarformi er beitt. Með fjölgun aldraðra á næstu árum mun öldrunarhjúkrun væntanlega verða stærri þáttur innan hjúkrunar en nú er. Auka þarf umræður og rannsóknir til að stuðla að gæðum í hjúkrun aldraðra og efla klínískan þekkingargrunn í starfi hjúkrunarfræðinga. Lykilorð: einmanaleiki og aldraðir, upprifjun minninga og meðferð, minningar.