Trú og félagsráðgjöf: Staða trúar í námi og starfi

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.A.-prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Viðfangsefni ritgerðarinnar er trú í starfi og menntun félagsráðgjafa. Fjallað er um trú, skilgreiningar trúar og rannsóknir á sambandi trúar við andlega og líkamlega heilsu. Starf félagsráðgjafa er skoðað í tengslum v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Unnur Erna Ólafsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27349
Description
Summary:Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.A.-prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Viðfangsefni ritgerðarinnar er trú í starfi og menntun félagsráðgjafa. Fjallað er um trú, skilgreiningar trúar og rannsóknir á sambandi trúar við andlega og líkamlega heilsu. Starf félagsráðgjafa er skoðað í tengslum við trú hérlendis sem og erlendis, til að mynda innan Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu. Markmið ritgerðarinnar er að svara eftirfarandi spurningum: Er trúarlegur skilningur mikilvægur í menntun og starfi félagsráðgjafa? Er ástæða til að leggja aukna áherslu á trú í menntun og starfi félagsráðgjafa á Íslandi? Leitast var við að svara þessum spurningum með því að notast við útgefnar rannsóknir, bækur og annað ritrýnt efni. Notast var við bæði íslenskar og erlendar heimildir. Helstu niðurstöður sýna að þörf er á frekari rannsóknum á sviði trúar og félagsráðgjafar. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu sviði en niðurstöður fyrirliggjandi rannsókna sýna í flestum tilfellum jákvæð tengsl milli trúar og heilsu þátttakenda. Það á við bæði um andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. This is a Bachelor's thesis in social work at the University of Iceland. The topic of the thesis is religion in social work and social work edcucation. Religion, definitions of religion and research relating to the effects of religion on mental and physical health will be discussed. The role of religion within social work will be examined both in Iceland and elsewhere, for example in America, Britain and Australia. The purpose of this paper is to answer the following questions: Is religious understanding important in social work and social work education? Should more emphasis be placed on religious topics within social work and social work education? Published research, books and other peer reviewed articles were used in order to answer these questions. The conclusion is that more research is needed in the area of religion and social work. Little research has been done in this area although published findings show that in most cases there ...