Gagnaver á Íslandi. Aðstæður til uppbyggingar

Markmið þessarar ritgerðar var að skýra frá aðstæðum gagnaversiðnaðarins á Íslandi og meta hvort þær aðstæður séu ákjósanlegar til frekari uppbyggingar og geti stuðlað að myndun klasa í upplýsinga- og hátækniiðnaði. Því samhliða var horft til mögulegra jákvæðra áhrifa á samfélag og atvinnusköpun sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Irma Jónsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27288
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar var að skýra frá aðstæðum gagnaversiðnaðarins á Íslandi og meta hvort þær aðstæður séu ákjósanlegar til frekari uppbyggingar og geti stuðlað að myndun klasa í upplýsinga- og hátækniiðnaði. Því samhliða var horft til mögulegra jákvæðra áhrifa á samfélag og atvinnusköpun sem slík uppbygging getur haft í för með sér og hvort iðnaðurinn hafi einhver neikvæð áhrif. Notast var við eigindlega aðferðarfræði sem byggði á skoðun fyrirliggjandi gagna frá samanburðarlöndunum Finnlandi og Írlandi, ásamt greiningu á sögu gagnavera á Íslandi og fjölmiðlaumfjöllun þeim tengdum. Til að meta íslenskar aðstæður var byggt á kenningum Porters um samkeppnishæfni og klasa, ásamt kenningu um tengslanet, sem voru svo settar í samhengi við niðurstöður rannsókna um samkeppnishæfni þjóða og áhættuþáttagreiningu í staðarvali gagnavera. Helstu niðurstöður voru þær að klasamyndun gagnavera og upplýsinga- og hátækniiðnaðar í samanburðarlöndunum hafi haft almennt jákvæð samfélagsáhrif með aukinni atvinnusköpun í formi beinna og afleiddra starfa, en þó heyrast neikvæðnisraddir vegna þeirra skattaívilnanna sem fyrirtæki í þessum iðnaði hljóta. Staða Íslands er mjög sterk þegar kemur að áhættuþáttagreiningu í staðarvali gagnavera, en landið situr um þessar mundir í fyrsta sæti yfir álitlegar staðsetningar fyrir gagnaver. Samtök gagnavera telja þó nauðsynlegt að endurskilgreina fastar starfsstöðvar í íslenskum lögum svo hægt sé að stuðla að frekari uppbyggingu iðnaðarins.