Líf með insúlínháða sykursýki : áhrif aðlögunar og andlegrar líðanar á blóðsykurstjórn

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Rannsóknin var unnin sem afmarkaður hluti rannsóknar leiðbeinanda, Árúnar K. Sigurðardóttur. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort andleg líðan fólks með insúlínháða sykursýki og aðlögun þess að sjúkdómnum hafi áhrif á blóðsykurst...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Fanney Maríasdóttir, Heiðdís Karlsdóttir, Helga Hákonardóttir, Soffía Björg Sigurjónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/272
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Rannsóknin var unnin sem afmarkaður hluti rannsóknar leiðbeinanda, Árúnar K. Sigurðardóttur. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort andleg líðan fólks með insúlínháða sykursýki og aðlögun þess að sjúkdómnum hafi áhrif á blóðsykurstjórn. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að andleg líðan og aðlögun hafi áhrif á blóðsykurstjórnun, einnig að bein tengsl séu á milli góðrar blóðsykurstjórnunar og fylgikvilla sykursýkinnar. Við gerð rannsóknarinnar var megindlegt rannsóknarsnið notað. Úrtakið var 120 einstaklingar á aldrinum 18-62 ára, sem komu í eftirlit til fjögurra sérfræðinga í sykursýki. Hjúkrunarfræðingar afhentu spurningalistana á biðstofum sérfræðinganna á tímabilinu 8. febrúar til loka maí árið 2002. Nítíu einstaklingar svöruðu eða 75%. Spurningalistinn samanstóð af tveimur mælitækjum, Eflingarlista og Ögrunarlista. Eflingarlistinn var notaður til að meta trú einstaklinga á því að geta tekist á við sykursýki og þá sjálfsumönnun sem henni fylgir, en Ögrunarlistinn metur andlega líðan fólks. Blóðsykurstjórnun var metin með mælingu á HbA1c-gildi þátttakenda. Helstu niðurstöður voru að meðaltal HbA1c-gildisins var tiltölulega lágt í rannsókninni í samanburði við það sem komið hefur fram í erlendum rannsóknum. Gæti þetta bent til þess að einstaklingar hérlendis hafi gott aðgengi að heilbrigðiskerfinu og séu vel upplýstir. Ekki var hægt að sýna fram á marktækt samband á milli aðlögunar og HbA1c-gildis, þessi niðurstaða samræmist ekki öðrum rannsóknum. Hugsanlegt er að við þýðingu Eflingarlistans hafi dregið úr næmi hans. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að andleg líðan hefur áhrif á blóðsykurstjórnun, það er í fullu samræmi við fyrri rannsóknir. Þá ályktun má draga að sykursýki sé sjúkdómur sem geti leitt til andlegrar vanlíðanar. Það er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar séu vakandi fyrir þessu og finni leiðir til þess að greina þessa einstaklinga sem fyrst, til þess að geta veitt viðeigandi hjúkrunarmeðferð. Lykilhugtök: Insúlínháð sykursýki, ...