Gods of the Shadows: Skaufhalabálkur and the Icelandic Fox

Þótt refurinn—eða hinn íslenski melrakki—sé eina upprunalega spendýrið í íslenskri náttúru, er varla hægt að segja að hann komi fyrir í elstu bókmenntum Íslendinga sem nokkru nemi. Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir þeim upplýsingum sem finna má um refinn í íslenskum miðaldaheimildum jafnt sem þj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Grayson Del Faro Stocks 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27082
Description
Summary:Þótt refurinn—eða hinn íslenski melrakki—sé eina upprunalega spendýrið í íslenskri náttúru, er varla hægt að segja að hann komi fyrir í elstu bókmenntum Íslendinga sem nokkru nemi. Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir þeim upplýsingum sem finna má um refinn í íslenskum miðaldaheimildum jafnt sem þjóðsögum síðari tíma, með áherslu á þau stöðluðu einkenni sem koma ítrekað fram í gegnum aldirnar. Í íslenskum miðaldabókmenntum er yfirleitt ekki getið um refinn sem dýr í eiginlegri mynd, heldur er vísað til hans í yfirfærðri merkingu: í eiginnöfnum, draumum og orðatiltækjum. Langoftast er refurinn þó sýndur sem einhvers konar jaðarvera, sem tengist þá iðulega óræðum mörkum: galdri (náttúru/yfirnáttúru), kynvitund (karlkyni/kvenkyni), ráðsnilld (valdi/gáfum) og hæfni til að lifa af (lífi/dauða); hið sama á við um síðari tíma þjóðfræðaefni. Með því að setja refinn í íslenskri sagnahefð í samhengi við goðsagnir um bragðarefi víða um heim jafnt sem evrópskar dýrasögur, er nú leitast við að draga fram eins konar menningarsögu íslenska refsins. Í þessum tilgangi er íslenskt frásagnarkvæði frá 15. öld, Skaufhalabálkur, nú þýtt í fyrsta skipti yfir á ensku, en þar segir með kómískum hætti frá hinstu veiðiferð íslensks refs, sem hefur þó áberandi mannlega eiginleika. Þýðingin er gerð með hliðsjón af upphaflegu skáldamáli bragarháttarins, fornyrðislagi, þar sem ljóðstöfum er haldið eins og kostur er. Með því að staðsetja kvæðið innan fyrirliggjandi upplýsinga um vistfræði refsins á Íslandi, bókmennta og þjóðsagna frá tólfu öld og fram til þeirrar tuttugustu, hafa hugmyndir um refinn í íslenskri sagnahefð nú verið settar í það samhengi sem ætti að auðvelda okkur að skilja hið flókna samband þessa frumbyggja landsins og þeirra landnema sem síðar settust að á Íslandi. The arctic fox is the only land mammal indigenous to Iceland, yet the animal hardly appears at all in the first few hundred years of Icelandic literature. This thesis examines the references to the fox in the Icelandic literature of the Middle Ages and many ...