Gagnsæi er lykill að góðum stjórnarháttum: Panama-málið sem dæmi um hagsmunaárekstra og spillingu í stjórnmálum á Íslandi.

Þessi ritgerð er lokaverkefni höfundar til BA-gráðu í stjórnmálafræði. Viðfangsefni hennar miðar að því að svara rannsóknarspurningunni „Er Panama-málið dæmi um spillingu á Íslandi samkvæmt alþjóðlegum mælikvarða á spillingu?“ Fjallað er um helstu einkenni spillingar og afleiðingar hennar, ásamt alþ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Fanney Hrafnsdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27020
Description
Summary:Þessi ritgerð er lokaverkefni höfundar til BA-gráðu í stjórnmálafræði. Viðfangsefni hennar miðar að því að svara rannsóknarspurningunni „Er Panama-málið dæmi um spillingu á Íslandi samkvæmt alþjóðlegum mælikvarða á spillingu?“ Fjallað er um helstu einkenni spillingar og afleiðingar hennar, ásamt alþjóðlegum mælikvarða samtakanna Transparency International á spillingu. Gerð er grein fyrir aðferðum sem eiga að uppræta og koma í veg fyrir spillingu. Í framhaldi af þeirri umfjöllun er sagt frá hagsmunaárekstrum sem einni birtingarmynd spillingar og hvernig hægt er að bera kennsl á aðstæður í stjórnkerfinu þar sem mögulegt er að persónulegir hagsmunir ráðamanna rekist á við almannahagsmuni. Einnig er aðferðum til að uppræta og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra gerð skil. Upplýsingar um Panama-málið eru skoðaðar í samhengi við skilgreiningar og mælikvarða spillingar. Málið er einnig skoðað í samhengi við birtingarmyndir hagsmunaárekstra þar sem áhersla er lögð á hagsmunaskráningu þingmanna. Samkvæmt samanburði við ofangreind atriði má segja að Panama-málið geti talist sem dæmi um spillingu á Íslandi og eru niðurstöður ritgerðarinnar í samræmi við það. Viss tilvik íslenskra ráðamanna í Panama-málinu teljast til spillingar á Íslandi samkvæmt alþjóðlegum mælikvarða á spillingu. This essay is my thesis for a B.A. degree in political science from the University of Iceland. It's content aims to answer the research question "Is the Panama Papers case an example of corruption in Iceland according to an international index on corruption?" The definitions of corruption are discussed as well as it's consequences, and an explanation of the international organization Transparency International's index on corruption. Methods that are meant to eradicate and prevent corruption are explained. In continuation of that review the focus shifts on to conflict of interests, that are defined as one manifestation of corruption and how it is possible to identify situations in the government where it is possible that the private interests of ...