Dagleg iðja einstaklinga sem gengið hafa í gegnum áfengis- og/eða vímuefnameðferð

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Að mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organisation, WHO) er áfengisvandi eitt helsta heilbrigðisvandamál sem jarðarbúar standa frammi fyrir. Samkvæmt heimildum verður oft röskun á daglegri iðju einstaklinga sem eiga...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Dagný Milla Baldursdóttir, Kristjana Milla Snorradóttir, Sonja Stelly Gústafsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/270
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Að mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organisation, WHO) er áfengisvandi eitt helsta heilbrigðisvandamál sem jarðarbúar standa frammi fyrir. Samkvæmt heimildum verður oft röskun á daglegri iðju einstaklinga sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Það leiðir af sér að þeir missa trúna á sjálfa sig og að þeir geti haft stjórn á eigin lífi og heilsu, auk þess sem röskunin hefur víðtæk áhrif á aðstandendur þeirra og samfélagið í heild. Árangur af áfengismeðferð er ekki nógu góður og margir sem fara í slíka meðferð hafa farið áður. Iðja er allt það sem fólk tekur sér fyrir hendur til að annast sjálft sig, vera nýtir þjóðfélagsþegnar og njóta lífsins. Rannsóknir hafa sýnt fram á að þátttaka í iðju sé mikilvæg og hafi jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan. Markmið verkefnisins var að kanna, með fyrirlögn spurningalista, daglega iðju einstaklinga sem gengið hafa í gegnum áfengis- og/eða vímuefnameðferð. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á iðju þessa hóps svo vitað sé. Könnuninni var ætlað að gefa vísbendingu um hvaða daglega iðju einstaklingarnir stunda, hversu mikilvæg hún sé þeim og hversu ánægðir þeir séu með frammistöðu sína. Rannsakendur sömdu spurningalista sem beinist að daglegri iðju út frá hugmyndafræði „Líkansins um iðju mannsins”. Sextíu einstaklingar 18 ára og eldri voru valdir með þægindaúrtaki á göngudeild Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ) í Reykjavík. Þrjátíu og níu listar fengust tilbaka og svarhlutfallið var því 65%. Notuð var megindleg rannsóknaraðferð og var lýsandi tölfræði beitt við úrvinnslu listanna. Niðurstöður sýndu að meirihluti þátttakenda stundar daglega iðju, þó sumir vildu gera betur. Flestum þátttakendum fannst mikilvægt að stunda daglega iðju en ekki virðast allir stunda þá iðju sem þeim þykir mikilvæg. Þrátt fyrir að flestir væru ánægðir með frammistöðu sína við iðju taldi meiri hlutinn þörf á að bæta hana að einhverju leyti. Þegar á heildina er litið styðja niðurstöður þá ...