Farskólahald í Fellshreppi á fimmta áratug tuttugustu aldar : formlegt og óformlegt nám

Farkennsla er fræðsluform sem kom fram á Íslandi á síðasta fjórðungi 19. aldar og varð farskólinn dæmigert millistig milli heimafræðslu og eiginlegs barnaskóla. Menn höfðu misjafnar skoðanir á farskólanum sem fræðsluformi og aðbúnaður nemenda og kennara var oft slæmur. Munur farskóla og fastra skóla...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Jónsdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26894
Description
Summary:Farkennsla er fræðsluform sem kom fram á Íslandi á síðasta fjórðungi 19. aldar og varð farskólinn dæmigert millistig milli heimafræðslu og eiginlegs barnaskóla. Menn höfðu misjafnar skoðanir á farskólanum sem fræðsluformi og aðbúnaður nemenda og kennara var oft slæmur. Munur farskóla og fastra skóla var í grófum dráttum sá að farskólinn var oftast á faraldsfæti og hafði ekki eiginlegt skólahús. Farskólinn var fræðsluform hinna dreifðu byggða. Seinasti farskóli landsins var í Fellshreppi í Strandasýslu en hann lagðist ekki af fyrr en 1978 þegar Broddanesskóli tók til starfa. Þessi rannsóknarritgerð byggir á hálfopnum viðtölum við fjóra einstaklinga, fædda 1933, 1934 og 1935. Þessir einstaklingar eiga það sameiginlegt að vera fæddir og uppaldir í Kollafirði í Fellshreppi. Þá voru þeir allir í farskóla á tímabilinu 1944−1948. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í farskólagöngu og nám viðmælenda. Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að hið formlega nám, barnaskólagangan, hafi verið mjög stutt. Námið var fjölbreytt og mikilvægt veganesti út í lífið en sá kennari, sem kenndi viðmælendum mínum mest, virðist hafa verið framsækinn skólamaður sem var mögulega undir áhrifum frá nýskólastefnunni. Viðmælendurnir eru almennt sáttir við veru sína í farskólanum, ef til vill vegna lítilla væntinga þeirra til formlegs náms í dreifbýli á þessum tíma. Ambulatory school is a form of schooling that emerged late in 19th century Iceland and became a typical intermediate stage between two forms, i.e. at home education and the actual primary school for children. People had different views on the ambulatory school, the conditions in which the teachers and students worked were often bad. The last ambulatory school in Iceland was in Fellshreppur in Strandasýsla, it remained there until 1978 when the primary school in Broddanes was founded. This research is based on semi-structured interviews with four persons born in 1933, 1934 and 1935. These individuals are all born and brought up in Kollafjörður in Fellshreppur. They also have it ...