Financial assessment and risk analysis for Airport Hotel

Þessi rannsókn fjallar um arðsemismat og áhætturgreiningu á flugvallarhóteli fyrir Isavia. Markmið verkefnisins er að gera verkfæri fyrir Isavia sem hægt að nota til frekar greiningar á fjárfestingunni.Flugvallarhótel er hluti af áætlun sem Isavia hefur unnið að til að svara þeirri aukningu ferðaman...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrönn Skaptadóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26884
Description
Summary:Þessi rannsókn fjallar um arðsemismat og áhætturgreiningu á flugvallarhóteli fyrir Isavia. Markmið verkefnisins er að gera verkfæri fyrir Isavia sem hægt að nota til frekar greiningar á fjárfestingunni.Flugvallarhótel er hluti af áætlun sem Isavia hefur unnið að til að svara þeirri aukningu ferðamanna sem hefur verið á Íslandi undanfarin ár. Isavia er eigandi og rekstraraðili Keflavikurflugvallar. Samkvæmt greiningum og spám gerir Isavia ráð fyrir að aukning haldi áfram næstu árin í farþegafjölda sem ferðast í gegnum Keflavíkurflugvöll. Ferðamannaiðnaðurinn hefur miklar árstíðasveiflur og er háanna tími ferðamannaiðnaðsins yfir sumartímann þ.e. júní, júlí og ágúst. Framboð á hótelherbergjum hefur aukist undanfarin ár og hefur nýting hótelherbergja ennig aukist á sama tíma. Markmiðið með þessari rannsókn er að bera saman þrjú mismunandi tilfelli. Hvert tilfelli hefur mismunandi forsendur hvað varðar byggingu og rekstur hótelsins. Í tilfelli 1 er gert ráð fyrir að Isavia byggi og reki hótelið. Í tilfelli 2 er gert ráð fyrir að Isavia byggi hótelið en leigi reksturinn út. Í tilfelli 3 er gert ráð fyrir að Isavia hanni hótelið en leigi út landið til rekstraraðila sem byggir og rekur hótelið. Þessi tilfelli byggja á áætluðum rekstrarkostnaði og -tekjum. Þegar þessi tilfelli eru skoðuð með tilliti til kostnaðar og tekna sem var áætlað fyrir hvert tilfelli, kemur tilfelli 3 best út þegar tekið er tillit til áhættu og arðsemi. Lykilorð: Arðsemismat, Arðsemi, Áhætturgreining, Fjárfesting í Flugvallarhóteli, Rekstrarverkfræði In this thesis a financial feasibility assessment and risk analysis is applied on an airport hotel for Isavia. The purpose of this thesis is to give Isavia a tool to work on future studies for this investment. The airport hotel is a part of a Masterplan that Isavia has conducted as a response to the increase of tourism in Iceland. Isavias owns Keflavik airport and is responsible for operating the airport. Isavia´s analysis and prediction of number of passengers travelling through Keflavík airport ...