Fæðuval ungra Íslendinga með geðrofssjúkdóma og þróun líkamsþyngdar þeirra á átta til 12 mánaða tímabili: Samanburður við fæðuval almennings á sama aldri

Tíðni lífstílssjúkdóma er hærri meðal einstaklinga með geðrofssjúkdóma en almennings sem að hluta má rekja til lífshátta. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma, en fæðuval þessa hóps hefur aldrei verið kannað hérlendis áður. Þátttakendur voru þjónustuþegar Lau...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Guðrún Friðþjófsdóttir 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26867
Description
Summary:Tíðni lífstílssjúkdóma er hærri meðal einstaklinga með geðrofssjúkdóma en almennings sem að hluta má rekja til lífshátta. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma, en fæðuval þessa hóps hefur aldrei verið kannað hérlendis áður. Þátttakendur voru þjónustuþegar Laugarássins (n=48, 18 – 30 ára), sem sóttu þjónustu á því tímabili sem gagnaöflun fór fram (júlí – ágúst 2016). Fæðuval og næringargildi fæðu var metið með sólarhringsupprifjun á mataræði. Niðurstöður voru bornar saman við ráðleggingar Embættis landlæknis og niðurstöður Landskönnunar á mataræði 2010-2011 fyrir sama aldurshóp (n=250). Upplýsingar um líkamsþyngd 12 mánuði aftur í tímann voru skráðar úr Sögu. Neysla á ávöxtum, fiski, mjólkurvörum, jurtaolíum og lýsi var marktækt lægri meðal þjónustuþega en hjá þátttakendum í Landskönnun 2010-2011, en neysla á sælgæti og gosdrykkjum hærri (p<0,001). Hlutfall viðbætts sykurs af heildarorku var hærra í fæði þjónustuþega (15% m.v. 12%) og hlutfall próteina lægra (16% m.v. 18%) heldur en í viðmiðunarhópnum. Hlutfall omega-3 fitusýra í fæði og neysla D-vítamíns var lægri á meðal þjónustuþega en meðal þátttakenda í landskönnun og vel undir ráðleggingum (0,04±0,3% omega-3 af heildarorku m.v. 1,2±0,6%, p<0,001 og 3,1±4,2 µg D-vítamín/dag m.v 5,6±6,5 µg/dag, p<0,001). Tæplega 40% þjónustuþega hafði þyngst um >5% af upphafsþyngd sinni á átta til12 mánaða tímabili. Fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma samræmist ekki opinberum ráðleggingum um fæðuval og er lakara en fæðuval almennings. Mikilvægt er að þróa leiðir til að bæta fæðuval hópsins og þar með næringargildi hópsins. The prevalence of lifestyle related diseases is higher among people with psychotic disorders than the general population. The aim was to assess dietary intake of young people with psychotic disorders for the first time in Iceland. Subjects were young people (n=48, age 18-30y) with psychotic disorders. Dietary intake was assessed by a 24-hour recall in July-August 2016, and compared with official ...