HönnunarMars JÁ eða Nei? : árangur þátttakenda í HönnunarMars

Hönnun og arkitektúr teljast til ungra atvinnugreina á Íslandi og er þróun þeirra mis langt á veg komin. Síðustu ár hafa greinarnar innan íslenska hönnunarsviðsins verið í sókn og mikil gróska hefur verið innan allra fagsviða hönnunar en þó virðist enn vanta fastmótaðri atvinnufarveg fyrir nýútskrif...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Íris Ósk Sighvatsdóttir 1977-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26804
Description
Summary:Hönnun og arkitektúr teljast til ungra atvinnugreina á Íslandi og er þróun þeirra mis langt á veg komin. Síðustu ár hafa greinarnar innan íslenska hönnunarsviðsins verið í sókn og mikil gróska hefur verið innan allra fagsviða hönnunar en þó virðist enn vanta fastmótaðri atvinnufarveg fyrir nýútskrifaða hönnuði og þurfa þeir því oft að skapa sín eigin atvinnutækifæri. Tilgangur þessa verkefnis var að kanna hvaða viðskiptalega árangri þátttaka í HönnunarMars skilar íslenskum þátttakendum hátíðarinnar. Jafnframt var kannað hjá hvaða aðilum þátttakendur ná mestum árangri sem og hvar þeir ná mestum árangri. Í rannsókninni er árangri skipt upp í þrjá þætti: Markaðssetningu, sölu og uppbyggingu tengslanets. Notast var bæði við eigindlegar og megindlegar aðferðir við rannsóknina. Gerð var spurningakönnun á netinu og hún send út til þátttakenda með tölvupósti en einnig voru tekin viðtöl við þrjá þátttakendur í HönnunarMars. Jafnframt voru tekin viðtöl við þrjá fagaðila sem starfa innan íslenska hönnunarsviðsins til að fá skýrari sýn af stöðu hönnunar og arkitektúrs á Íslandi í dag. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að meirihluti þátttakenda töldu sig hafa náð góðum eða mjög góðum árangri með þátttöku í HönnunarMars og uppbygging tengslanets var sá þáttur árangurs sem þátttakendur náðu mestum árangri í. Aðrar niðurstöður sýndu að þátttakendur náðu best til íslenskra endursöluaðila og að þátttakendur í HönnunarMars náðu mestum árangri með sína hönnun á Íslandi. Lykilorð: HönnunarMars, árangur, hönnun, arkitektúr, markaðssetning, sala, tengslanet. Design and architecture are considered relatively young trades in Iceland and the progress of their development varys between the trades. In recent years the trades have been growing and a substantial growth has been noted within every profession of the design industry. However there is still a lack of available employment opportunities for newly graduated designers that frequently results in them having to rely solely on their ability to innovate or create their own ...