Iceland Inn : viðskiptaáætlun

Í BS verkefni þessu mun höfundur skoða fýsileika þess, út frá rekstarlegum og markaðslegum forsendum, að byggja upp og reka hótel í uppsveitum Árnessýslu. Hótel þetta yrði all sérstætt þar sem það yrði byggt upp sem torfbær og leitast við að gera upplifun gesta og áferð þjónustunar sem líkast þeirri...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helgi Haukur Hauksson 1984-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26803
Description
Summary:Í BS verkefni þessu mun höfundur skoða fýsileika þess, út frá rekstarlegum og markaðslegum forsendum, að byggja upp og reka hótel í uppsveitum Árnessýslu. Hótel þetta yrði all sérstætt þar sem það yrði byggt upp sem torfbær og leitast við að gera upplifun gesta og áferð þjónustunar sem líkast þeirri upplifun að búa í hefðbundnum raunverulegum torfbæ. Verkefnið er viðskiptaáætlun og verður notast við þá hugmyndafræði og aðferðir sem IMPRA nýsköpunarmiðstöð hefur sett fram. Verður verkefnið skoðað út frá því sjónarmiði að meta hvort að það sé fýslegur kostur að fara í framkvæmd sem þessa út frá rekstarlegum og markaðslegum forsendum. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir þeirri hugsanlegu arðsemi sem verkefnið getur haft í för með sér fyrir eigendur eða hugsanlega fjárfesta. Áhugi höfundar á að skoða þetta viðfangsefni hlýst sér í lagi af þeim aukna ferðamanna straumi sem hefur verið til Íslands undanfarin ár og þeim uppbyggingar möguleikum sem honum hafa fylgt. Ásamt þeirri umræðu um að meiri fjölbreytileiki og sérstaða þurfi að vera til staðar þegar kemur að upplifun og þjónustu við ferðamenn.