Er Ísland of lítið fyrir Big Data?

Í viðskiptaumhverfi nútímans standa fyrirtæki frammi fyrir auknu magni gagna sem þeim berast frá mörgum ólíkum uppsprettum. Með vönduðum greiningum á gögnum geta fyrirtæki byggt ákvarðanir sínar á sterkari rökum og geta þannig skapað sér mögulegt samkeppnisforskot. Eftirfarandi er rannsókn á notkun...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eva Þorsteinsdóttir 1980-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26802
Description
Summary:Í viðskiptaumhverfi nútímans standa fyrirtæki frammi fyrir auknu magni gagna sem þeim berast frá mörgum ólíkum uppsprettum. Með vönduðum greiningum á gögnum geta fyrirtæki byggt ákvarðanir sínar á sterkari rökum og geta þannig skapað sér mögulegt samkeppnisforskot. Eftirfarandi er rannsókn á notkun íslenskra fyrirtækja á gagnagnótt. Rannsókninni er ætlað að varpa ljósi á helstu áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir varðandi nýtingu gagnagnóttar til gagnadrifinnar ákvarðanatöku í markaðsstarfi sínu. Helstu niðurstöður eru þær að hugarfar stjórnenda leiki lykilhlutverk í þeirri ákvarðanatöku hvort fyrirtækið hafi gagnadrifna menningu eður ei. Einnig er mikilvægt að hafa tiltækan mannauð með þekkingu á viðfangsefninu, sem jafnan er sérhæfð og tæknileg, eða útvista verkefnum ef þannig ber undir. Ákvarðanir á grundvelli greininga á raungögnum geta hjálpað fyrirtækjum að viðhalda eða skapa samkeppnisforskot í hröðu og krefjandi viðskiptaumhverfi nútímans.