Summary: | Hér er tekin upp umræða um mikilvægi, stöðu og þróun, sex stærri félaga á sviði sviðslista og sinfónískrar tónlistar sem rekin eru með framlögum úr ríkissjóði og/eða með fjárstuðningi sveitarfélaga. Rannsókninni er ætlað að styðja við þær rannsóknir sem þegar liggja fyrir um hagræn áhrif og stærð skapandi greina, menningar og lista. Markmiðið rannsóknar var að rýna hlutverk ríkisins og stoðir menningar; lög og reglugerðir ásamt þeim mælikvörðum sem ríkið notar við úthlutun opinbers fjár til félaganna, stöðu þeirra og þróun frá efnahagshruni. Rannsóknarspurningunum, um hvort félögin séu mikilvæg menningarhagkerfi landsins; hvort þau skapi menningarlegra verðmæti fyrir samfélagið og hvort þau stuðli að auknum lífsgæðum var einnig svarað. Í ljósi fákeppni á markaði félaganna var að mestu stuðst við opinber gögn enda var það vilji viðmælenda rannsóknarinnar að ekki væri farið dýpra í fjárhagsáætlanir og ársreikninga félaganna. Nokkur þessara félaga birta ekki ársreikninga sína opinberlega og því reyndist rannsakanda erfitt að afla sér viðunandi upplýsinga sem til þurfti svo að samanburður á nýtingu fjármagns yrði sem nákvæmastur. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna ágætlega að stærsti hlutur tekna félaganna koma frá hinu opinbera. Einnig kom í ljós að stærri félögin njóta forgangs þegar kreppir að og skorið er niður í málaflokknum sömuleiðis að úthlutunarreglur eru ekki aðgengilegar. Það er mjög mikilvægt fyrir hið opinbera að hafa mælikvarða aðgengilega fyrir þegnanna og að úthlutunarreglur séu samræmdar og sanngjarnar. Það vakti furðu rannsakanda að ríkisvaldið hafi dregið úr opinberum fjárframlögum til félaganna eftir hrun í ljósi þess að eftirspurn og þörf fyrir hverskonar menningu stór jókst. Listamenn þjóðarinnar voru mörgum skjól, veittu hugarró á meðan aðrir fengu útrás fyrir réttláta reiði. Það væri tilefni til frekari rannsóknar að skoða tengsl og áhrif menningar á ferðaþjónustu á Íslandi. Það er von höfundar að þessi rannsókn sé upplýsandi og áhugaverð fyrir lesandann og lestur hennar gefi innsýn inn í ...
|