Skuldbindingar Íslands samkvæmt samningi Evrópuráðsins um hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum

Í þessari ritgerð verður leitast við að svara hvort Ísland uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt samningi Evrópuráðsins um hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum. Í því skyni verður í upphafi ritgerðarinnar dregin upp heildstæð mynd af hugtakinu hagræðing úrslita. Hagræðing úrslita er skilgreind í rit...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnar Már Björgvinsson 1990-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26638
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður leitast við að svara hvort Ísland uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt samningi Evrópuráðsins um hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum. Í því skyni verður í upphafi ritgerðarinnar dregin upp heildstæð mynd af hugtakinu hagræðing úrslita. Hagræðing úrslita er skilgreind í ritgerðinni sem, fyrirkomulag, gjörningur eða aðgerðarleysi sem er af ásetningi og miðar að því að breyta úrslitum eða gangi íþróttakeppna með óviðeigandi hætti í því skyni að víkja alfarið eða að hluta til frá hinu ófyrirsjáanlega eðli fyrrnefndrar íþróttakeppni til þess aftur að ná fram óréttmætum ávinningi fyrir sjálfan sig eða aðra. Þá er í ritgerðinni varpað ljósi á mikilvægi íþrótta í nútímasamfélagi og skoðað hvaða afleiðingar hagræðing úrslita getur haft í för með sér gagnvart eðli og hlutverki íþróttuna. Því næst er fjallað um þá aðila sem helst teljast bærir til að hagræða úrslitum og að því loknu gerð athugun á umfangi slíkrar háttsemi á Íslandi. Næst er farið yfir aðgerðir ýmissa alþjóðasamtaka gegn hagræðingu úrslita og meginefni samnings Evrópuráðsins útlistað. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er fyrst og fremst skoðun á reglum innlendra íþróttasambanda og ákvæði almennu hegningarlaganna sem taldar eru ná yfir háttsemina. Einnig voru skoðaðar sambærilegar reglur í Danmörku og Noregi í þeim tilgangi að kanna hvað Norðurlöndin hafa gert í baráttunni gegn hagræðingu úrslita á Norðurlöndunum. Helsta niðurstaða ritgerðarinnar er sú að núverandi regluverk gegn hagræðingu úrslita á Íslandi er illa til þess fallið að ná yfir háttsemina með fullnægjandi hætti og uppfyllir Ísland því ekki skuldbindingar sínar samkvæmt samningi Evrópuráðsins. This thesis will endeavour to answer whether Iceland has met its obligations pursuant to the Council of Europe Convention on the Manipulation of Sports Competitions (hereinafter the „Europe Convention“). For that purpose, a comprehensive discussion on the term manipulation of sports competitions, which means an intentional arrangement, act or omission aimed at an improper ...