Stuðningur við fjölskyldur

Markmið þessarar ritgerðar er að skoða þann stuðning og þau úrræði sem barnafjölskyldum býðst hérlendis allt frá meðgöngu og fram að eins árs aldri barns. Barnafjölskyldum býðst margskonar stuðningur og fjöldi úrræða sem ætlað er að stuðla að góðri líðan foreldra og barna, auk þess að efla foreldra...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Rán Andrésdóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26564
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er að skoða þann stuðning og þau úrræði sem barnafjölskyldum býðst hérlendis allt frá meðgöngu og fram að eins árs aldri barns. Barnafjölskyldum býðst margskonar stuðningur og fjöldi úrræða sem ætlað er að stuðla að góðri líðan foreldra og barna, auk þess að efla foreldra í hlutverki sínu. Má þar nefna félagsþjónustu, mæðravernd og ung- og smábarnavernd, Barnavernd, víðtækt tryggingakerfi, húsnæðisstuðning, fæðingarorlofskerfi og ýmis sérúrræði. Samstarf ríkir á milli hinna ýmsu stofnanna er koma að þjónustu við fjölskyldur og virðist sem fjölskyldur fái góðan og samfelldan stuðning í gegnum meðgöngu og fyrsta ár barnsins. Þó er stuðningur misjafn eftir sveitarfélögum og þær fjölskyldur sem búa úti á landi hafa ekki sama aðgang að þjónustuúrræðum og þær sem búa á höfuðborgarsvæðinu eða í nánd við Akureyri. Stjórnvöld hafa sett sér markvissa stefnu til að styðja við barnafjölskyldur og ef henni verður fylgt eftir, má búast við því að fjölskyldustuðningur muni aukast á næstu árum. Í ritgerðinni var leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvernig er stuðningi við barnafjölskyldur háttað? Hverskonar úrræði standa þeim til boða?