Upplifun fanga á félagslegum veruleika sínum og öryggi í fangelsi „. mér fannst bara talað niður til mín og hugsa kannski bara um okkur eins og nautgripi í búri …”

Markmið þessarar eigindlegu rannsóknar var að fjalla um ofbeldi í fangelsum og byggir á upplifun einstaklinga sem setið hafa af sér refsidóma. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að ofbeldi á sér stað innan fangelsa bæði af hendi samfanga og starfsmanna en hefur ekki verið rannsakað hér á landi. Áhersla v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Nína Jacqueline Becker 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26555
Description
Summary:Markmið þessarar eigindlegu rannsóknar var að fjalla um ofbeldi í fangelsum og byggir á upplifun einstaklinga sem setið hafa af sér refsidóma. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að ofbeldi á sér stað innan fangelsa bæði af hendi samfanga og starfsmanna en hefur ekki verið rannsakað hér á landi. Áhersla var lögð á það að kanna hvernig einstaklingar upplifa félagslegan veruleika sinn og öryggi í fangelsi. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í upplifun einstaklinga með tilliti til öryggis, valdbeitingar og/eða ofbeldis á meðan þeir afplánuðu. Tekin voru ellefu hálfstöðluð viðtöl við karlmenn sem hafa afplánað í fangelsi til að kanna hvort eða hversu mikið ofbeldi væri í fangelsi og hver væri rót þess. Fjallað var um kenningar um ofbeldi í fangelsum og þær hafðar til hliðsjónar við túlkun á niðurstöðum og má þar nefna álagskenningu Agnew. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að ofbeldi í öllum sínum birtingarmyndum er að finna í fangelsi. Viðmælendur upplifðu ofbeldi, urðu vitni að því eða beittu því sjálfir á samfanga sína. Niðurstöðurnar eru í samræmi við erlendar rannsóknir og viðurkenndar kenningar um ofbeldi í fangelsum. Vonast er til þess að niðurstöður nýtist í stefnumótun um aðbúnað og gæslu afplánunarfanga. Lykilorð: ofbeldi, tilfinningalegt ofbeldi, líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, fangelsi, afplánun The aim of this qualitative research was to explore violence in prison based on the experience of individuals who have finished their sentence. Foreign studies have shown that violence occurs within prisons both by other prisoners and by employees but no previous research has been conducted in Iceland on this subject. Emphasis was placed on exploring how former prisoners experience their social reality and their safety while in prison. The main goal of this study was to gain insight into the experience of individuals with regard to safety, use of force and/or violence while they were in prison. Eleven semi-standardized interviews were contucted with men who have served time, to ...