Grá svæði í þjónustu við börn

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 18/1992 eða Barnasáttmálinn var löggiltur hér á landi árið 2013. Í Barnasáttmálanum er lögð áhersla á almennan rétt barna sem og sérstakan rétt og vernd sem þau eiga skilið vegna þroska og aldurs. Í þriðju grein Barnasáttmálans segir að það eigi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Soffía Guðrún Guðmundsdóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26414
Description
Summary:Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 18/1992 eða Barnasáttmálinn var löggiltur hér á landi árið 2013. Í Barnasáttmálanum er lögð áhersla á almennan rétt barna sem og sérstakan rétt og vernd sem þau eiga skilið vegna þroska og aldurs. Í þriðju grein Barnasáttmálans segir að það eigi ávallt að byggja ákvarðanir í málefnum barna á því sem er þeim fyrir bestu. Ritgerð þessi fjallar um grá svæði í þjónustu við börn með sértækar raskanir á Íslandi. Grá svæði eru skilgreind sem óskilgreind svæði. Þá er átt við að börn, sem eru með sértækar raskanir og lenda á gráum svæðum, fái ekki þá þjónustu sem þau þurfa á að halda vegna þess að ábyrgðarsvæði stofnana skarast. Þetta hefur ekki áður verið rannsakað hér á landi. Markmið rannsóknarinnar er að skoða þjónustu við börn með sértækar raskanir hér á landi og hvort þjónustan sé í samræmi við ákvæði Barnasáttmálans. Í þessu skyni voru tekin átta viðtöl við fagmenn sem vinna að þjónustu við börn og aðstandendur þeirra á höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum. Helstu niðurstöður eru þær að allir viðmælendur vildu heildrænna kerfi með meira samstarfi og betri skilgreiningum í þjónustunni við börn. Allir viðmælendur þekktu til grárra svæða og sex af átta viðmælendum nefndu að börn með fjölþættan vanda og geðraskanir væru helst á gráum svæðum. Tveir nefndu að þetta ætti einnig við börn með ADHD. Allir viðmælendur utan einn álitu að ekki væri verið að fylgja Barnasáttmálanum í þjónustu við börn hér á landi. Þessar niðurstöður gefa til kynna að það þurfi að bæta talsvert þjónustu við börn með sértækar raskanir hér á landi. Lykilorð: þjónusta, sértæk aðstoð, Barnasáttmálinn, grá svæði, börn. The United Nations Convention on the Rights of the Child was ratified in Iceland in 2013. The treaty emphasizes the general rights of children, and the special rights and protection which they are entitled to in accordance with their age and developmental abilities. Article 3 of the treaty stresses that decisions that concern children must always be guided by their best ...