Hinn týndi hópur: Að lifa með HIV

Fáar rannsóknir sem kanna líðan og stöðu eldri HIV-smitaðra einstaklinga hafa verið gerðar hér á landi. Þessi rannsókn er eigindleg og snýst um upplifun einstaklinga sem hafa smitast af HIV-sjúkdómnum. Kannað var hvaða áhrif HIV hefur haft á líf þeirra og á samband þeirra við fjölskyldu og vini og h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Skúli Ragnar Skúlason 1964-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26406
Description
Summary:Fáar rannsóknir sem kanna líðan og stöðu eldri HIV-smitaðra einstaklinga hafa verið gerðar hér á landi. Þessi rannsókn er eigindleg og snýst um upplifun einstaklinga sem hafa smitast af HIV-sjúkdómnum. Kannað var hvaða áhrif HIV hefur haft á líf þeirra og á samband þeirra við fjölskyldu og vini og hvernig HIV-jákvæðir upplifa viðhorf almennings í samfélaginu til sjúkdómsins. Markmið rannsóknarinnar var að skyggnast inn í huglægan veruleika eldra HIV-smitaðs fólks og skoða persónulega og félagslega upplifun þess af að lifa og eldast með sjúkdóminn (ótímabær öldrun) ásamt framtíðarsýn. Mikilvægt var að skoða hvort fordómar birtast í lífi þeirra og á hvaða hátt væri hægt að koma í veg fyrir feluleikinn sem virðist einkenna þenna hóp. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við átta einstaklinga, fjóra karla og fjórar konur, sem áttu það sameiginlegt að hafa greinst með HIV-veiruna. Niðurstöður sýndu að tengslanet og sjálfsmynd höfðu mikil áhrif á persónulega upplifun viðmælenda við greiningu sjúkdómsins. Meira en helmingur þátttakenda ræddu ekki opinskátt um sjúkdóminn og út frá því má álykta að fordómar og stimplun séu enn ríkjandi í íslensku samfélagi gagnvart HIV. Það er von rannsakanda að með rannsókninni öðlist HIV-jákvæðir hugrekki til að stíga fram úr skugga sjúkdómsins. Fram kom að tengsl þátttakenda við fjölskyldu og vini voru jákvæð en erfiðast í lífi þeirra reyndist myndun náinna tengsla (rómantískra tengsla) og ótti við höfnun vegna sjúkdómsins. Allir viðmælendur upplifðu gott viðmót frá fagfólki með fáeinum undantekningum. Fáir viðmælenda fundu fyrir ótímabærri öldrun sem er ólíkt því sem fyrri rannsóknir sýna. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru á margan hátt jákvæðar og framtíðarsýn eldri HIV-jákvæðra einstaklinga virðist björt og heilt yfir er staða flestra góð í íslensku samfélagi. Efnisorð: HIV, alnæmi, fordómar, stimplun, félagsráðgjöf, tengsl, öldrun (ótímabær öldrun). There have not been many studies conducted here in Iceland which explore the well-being and status of older HIV-positive individuals. ...