Ég held að Ísland hafi verið stóri lottóvinningurinn. Upplifun ættleiddra einstaklinga erlendis frá af því að alast upp á Íslandi

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna upplifun ættleiddra einstaklinga erlendis frá á því að alast upp á Íslandi svo og hvort viðmælendur teldu þörf á því að fagaðili á borð við félagsráðgjafa sérmenntaði sig í málefnum ættleiddra til að geta veitt þeim stuðning. Þá var einnig spurt hvort viðmælen...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Skjaldardóttir 1975-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26387
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar er að kanna upplifun ættleiddra einstaklinga erlendis frá á því að alast upp á Íslandi svo og hvort viðmælendur teldu þörf á því að fagaðili á borð við félagsráðgjafa sérmenntaði sig í málefnum ættleiddra til að geta veitt þeim stuðning. Þá var einnig spurt hvort viðmælendur hefðu viljað að kjörforeldrar þeirra væru sér meðvitaðir um ákveðna þætti í uppvexti þeirra sem þeir voru ekki, og einnig hvort menningu, hefðum og siðum upprunalands þeirra hefði verið haldið að þeim. Rannsóknin er gerð með eigindlegri rannsóknaraðferð og voru viðtöl tekin við átta viðmælendur sem allir eru ættleiddir erlendis frá og eru komnir yfir tvítugt. Viðmælendur eru frá þremur mismunandi upprunalöndum og voru eins til sjö mánaða við ættleiðingu. Viðtölin voru tekin í september og október 2016. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðmælendur eru flestir ánægðir með að hafa alist upp á Íslandi og telja að kjörforeldrar sínir hafi tekið rétt og vel á þeim málum sem upp komu og tengdust ættleiðingu þeirra. Þá telja viðmælendur að kjörforeldrar sem nú á tímum ættleiða börn standi frammi fyrir meiri vanda en þeirra eigin foreldrar og kemur þar tvennt til. Annars vegar að börn eru nú orðin mun eldri við ættleiðingu en áður var og því búin að mynda tengsl og eignast minningar í upprunalandi og hins vegar að veraldarvefurinn er upplýsingaveita þar sem börn geta sjálf sótt upplýsingar áður en að þau eru tilbúin til að meðtaka þær. Þátttakendur höfðu ekki nýtt sér aðstoð fagfólks vegna ættleiðingar sinnar en töldu þörf á slíkum aðila, ekki síst þegar litið er til hækkandi aldurs barna á síðustu árum þegar að þau eignast íslenska kjörforeldra. Efnisorð: fullorðnir ættleiddir, ættleidd börn, sjálfsmynd ættleiddra, ættleiðingar, að ættleiða, að vera ættleiddur. The purpose of this study is to investigate how international adoptees in Iceland experience being raised in Iceland and furthermore whether they think that social workers who specialize in adoption issues are needed. In addition the respondents were asked ...