Af leiksviði í skólasamfélag : skapandi nálgun í kennslu

Sköpun er nú einn af grunnþáttum menntunar á Íslandi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Í þessu meistaraverkefni skoða ég hvernig kennari getur innleitt áherslu á sköpun í kennslu í ljósi reynslu minnar úr leikhúsi. Ég fjalla um bakgrunn minn sem leikkonu og helstu áhrifavalda á ferlinum. Eftir tæpleg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Halldóra Rósa Björnsdóttir 1966-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26352
Description
Summary:Sköpun er nú einn af grunnþáttum menntunar á Íslandi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Í þessu meistaraverkefni skoða ég hvernig kennari getur innleitt áherslu á sköpun í kennslu í ljósi reynslu minnar úr leikhúsi. Ég fjalla um bakgrunn minn sem leikkonu og helstu áhrifavalda á ferlinum. Eftir tæplega tuttugu ára starf hjá Þjóðleikhúsinu steig ég af leiksviðinu og tók að mér almenna kennslu og leiklistarkennslu við grunnskóla vestur á fjörðum. Nú starfa ég sem umsjónarkennari á miðstigi við Grunnskólann í Borgarnesi. Ég hélt kennsludagbók veturinn 2015-2016 og þegar ég greindi hana skoðaði ég sérstaklega lykilhugtökin sköpun, reynslu og skynjun. Í verkefninu kem ég inn á fagurfræðilega nálgun í kennslu, hugmyndir fræðimanna á því sviði og hvernig fagurfræði getur tengt alla þessa þætti saman. Megin áherslan er þó á að skoða eigin kennsluhætti í ljósi reynslu minnar sem leikkona og móta mína starfskenningu. As creativity is now one of the fundamental pillars of education in Iceland according to the national curriculum I observed how a teacher can implement emphasis on creativity in his teaching in view of my experience from the theatre. I discuss my background as an actress and those who had the main influence on me. After nearly twenty years work in the National Theatre I stepped off the stage and started teaching both general classes and drama classes in a primary school in the Westfjords. I now work as a classroomteacher in 4th to 6th grade at the elementary school of Borgarnes. I kept a teacher’s diary in the winter of 2015-2016 and when I diagnosed it I extracted the key concepts creativity, experience and perception from it. In the project I discuss an aesthetic approach in education, the ideas of scholars in that area and how aesthetics can connect all these key factors. The main emphasis is however on viewing my own teaching methods in light of my experience as an actress and to form my teaching statement.