Summary: | Lífið er saltfiskur, mestmegnis, sagði Salka Valka. Ekki „draumahríngl“. Í draumi hendir okkur að það sem við viljum gerist áreynslulaust en í raunveruleikanum veitist okkur ekkert nema með fyrirhöfn, misjafnlega mikilli þó eftir aðstæðum okkar. Í byrjun árs 2016 héldu rúmlega 11 þúsund einhleypar konur barni sínu eða börnum lögheimili á Íslandi og teljast því vera einstæðar mæður samkvæmt skilgreiningu Hagstofu Íslands. Tölur hennar sýna fjárhagslega erfiða afkomu margra þeirra og aðrar upplýsingar erfiðar félagslegar aðstæður. Í þessari ritgerð greinir höfundur frá niðurstöðum úr eigindlegri rannsókn hans þar sem 10 einstæðar mæður á Íslandi lýsa högum sínum, fjárhagslegri afkomu og félagslegum aðstæðum, en líka „draumahríngli“ sínu sem stundum er um breyttar hjúskaparaðstæður en fremur þó um að viðurkennd verði í verki og virt sú fjölskyldueining sem þær mynda með barni sínu eða börnum. Í sögu þeirra má lesa baráttu fyrir persónulegu sjálfstæði þeirra sjálfra og fyrir þeirri fjölskyldueiningu sem þær reyna við erfiðar aðstæður að mynda með barni sínu eða börnum. Það er flókin saga en rauður þráður hennar eru börnin sem gera líf mæðra sinna vandasamara en ella en eru þeim um leið persónulegur styrkur vegna þeirrar baráttu daglegs lífs sem þær heyja fyrir velferð þeirrar. Sú barátta er iðulega háð við aðstæður og gegn öflum sem hindra eðlilega þátttöku í samfélaginu og stuðla að félagslegri jaðarsetningu. Fjallað verður um þetta efni með vísan í auðmagnskenningar Pierre Bourdieu um misskiptar bjargir einstaklinganna, kenningar Michel Foucault um samband valds og frelsis og tilurð nútímamóðurinnar, rannsóknir Val Gillies á högum mæðra í verkalýðsstétt á Englandi og kenningar Sarah Blaffer Hrdy um útvistun móðurhlutverksins hjá manninum sem tegund. Með því vonast höfundur til þess að náist það markmið að vekja í samfélaginu áhuga og skilning á lífi einstæðra mæðra í efnahagslegum og félagslegum vanda og að vaxa sjálfur sem fag- og fræðimanneskja um þetta efni. Lykilorð: Einstæðar mæður, skertar bjargir, ...
|