Maternal pre-eclampsia/eclampsia during pregnancy and academic progress in the offspring. A prospective population-based cohort study

Háþrýstingssjúkdómar flækja allt að 10% af meðgöngum. Rannsóknir hafa sýnt fram á hugsanleg tengsl milli háþrýstings mæðra á meðgöngu og taugaþroska barna en niðurstöður eru ekki einhlítar. Tilgátan okkar var sú að börn útsett fyrir meðgöngueitrun/meðgöngukrampa væri hættara á slökum árangri á stöðl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Friðgeir Andri Sverrisson 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26294
Description
Summary:Háþrýstingssjúkdómar flækja allt að 10% af meðgöngum. Rannsóknir hafa sýnt fram á hugsanleg tengsl milli háþrýstings mæðra á meðgöngu og taugaþroska barna en niðurstöður eru ekki einhlítar. Tilgátan okkar var sú að börn útsett fyrir meðgöngueitrun/meðgöngukrampa væri hættara á slökum árangri á stöðluðum samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði sem lögð eru fyrir í 4., 7. og 10. bekk á landsvísu samanborið við óútsett börn. Við framkvæmdum framskyggna hóprannsókn þar sem við notuðum lýðgrundaðar gagnaskrár til að fylgja eftir öllum börnum fæddum á Íslandi milli 1. janúar 1989 og 31. desember 2004 frá móðurkviði til loka ársins 2014. Rannsóknarhópurinn innihélt þannig 63,014 einstök börn. Eftir að hafa leiðrétt fyrir mögulegum blöndunarþáttum tengdist meðgöngueitrun/meðgöngukrampi lægri árangri í 4. bekk í stærðfræði (-0.46; 95% CI: -0.03, -0.89) en ekki í íslensku (-0.27; 95% CI: -0.70, 0.16). línulegar breytingar bæði í stærðfræði (-0.10; 95% CI: -0.34, 0.14) og íslensku (0.06; 95% CI: -0.16, 0.28) reyndust ómarktækar. Meðgöngueitrun/meðgöngukrampi tengist lægri árangri í stærðfræði í fjórða bekk grunnskóla, en munurinn er minni en einn tíundi úr staðalfráviki sem gefur til kynna lítil áhrif. Þrátt fyrir að línuleg breyting milli mæklinga reyndist ómarktæk bendir hún til þess að útsett og óútsett börn séu að sundurgreinast enn frekar með hverri mælingu í stærðfræði. Þörf er á frekari rannsóknir með enn lengri eftirfylgd til að leggja mat á sambandið í ljósi þeirra niðurstaðna sem settar hafa verið fram og hvort hugsanlegur munur á námsárangri á milli þessara hópa eykst, minnki eða haldist sá sami. Hypertensive disorders complicate up to 10% of pregnancies. Studies have suggested a potential association between maternal hypertensive disorders during pregnancy and offspring neurodevelopment later in life, but remain inconclusive. We hypothesized that children exposed to pre-eclampsia/eclampsia during pregnancy are at an increased risk of underperforming on national standardized tests in the language arts and ...