Optimized Sea Transport of Fresh Fillets and Loins. Quality and Cost

Útflutningur ferskra hvítfiskflaka og -bita hefur aukist hratt síðastliðinn áratug. Ár frá ári eykst magn af ferskum flökum og bitum sem flutt eru frá Íslandi sjóleiðis. Vara sem var nánast eingöngu flutt með flugi fyrir áratug er nú nánast til jafns flutt með skipum. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að k...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásgeir Jónsson 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26292
Description
Summary:Útflutningur ferskra hvítfiskflaka og -bita hefur aukist hratt síðastliðinn áratug. Ár frá ári eykst magn af ferskum flökum og bitum sem flutt eru frá Íslandi sjóleiðis. Vara sem var nánast eingöngu flutt með flugi fyrir áratug er nú nánast til jafns flutt með skipum. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að kostnaður við að flytja vöruna með skipi er allt að þrisvar til fjórum sinnum lægri auk þess sem sótsporið er umtalsvert minna. Markmið þessa verkefnis er að greina þróun flutninga á ferskum flökum og bitum frá Íslandi undanfarin ár. Einnig að meta áhrif þess á gæði og geymsluþol þegar ferskri afurð er pakkað á hefðbundinn hátt í frauðkassa samanborið við að pakka henni í ískrapa í ker. Í síðasta lagi að bera saman umbúða- og flutningskostnað þessara tveggja pökkunaraðferða. Niðurstöðurnar sýna að magn ferskra flaka og bita sem flutt er með skipum frá Íslandi tæplega sexfaldaðist frá 2004 til 2014. Árin 2013 og 2014 fór um 90% af þeim fersku flökum og bitum sem fluttir voru með skipum á tvo markaði; Bretland og Frakkland. Niðurstöður rannsókna sýna að sterk jákvæð tengsl eru milli lengra geymsluþols og þess að pakka afurð í ískrapa í ker samanborið við frauðkassa. Ískrapinn bætti einnig upp fyrir skort á forkælingu fyrir pökkun. Niðurstöður kostnaðargreiningar sýna að umtalsvert ódýrara er að pakka vöru í ker en frauðkassa. Þá er flutningskostnaðar einnig lægri í flestum tilvikum þegar ker eru borin saman við frauðkassa. Meira en helmingi lægri ef borinn er saman kostnaður við að flytja fullan gám af kerum annars vegar og 3 kg frauðkössum hins vegar. Sveigjanleikinn við notkun kera er þó mun minni og dregur það úr notkunarmöguleikum. Lykilorð: Ferskfiskflutningar, sjóflutningar, geymsluþol, kostnaðargreining, kæling, frauðkassar, ker. Export of fresh white fish fillets and loins from Iceland has increased rapidly over the last decade. More and more fillets and loins are transported with ships. What used to be an exclusive air freight business is now almost equal. Previous research has shown that the cost of sea ...