Brottfall úr námskeiði í stærðfræðigreiningu metið með lifunargreiningu

Markmið þessarar rannsóknar var að leggja mat á umfang brottfalls frá inngangsnámskeiði í hagnýtri stærðfræðigreiningu (Calculus IC) við Háskóla Íslands, tímasetningu brottfalls og hvaða þættir spá fyrir hvort nemandi hætti námi eða ekki. Gögnin sem notast var við koma frá Nemendaskrá Háskóla Ísland...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrefna Hjartardóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26201
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að leggja mat á umfang brottfalls frá inngangsnámskeiði í hagnýtri stærðfræðigreiningu (Calculus IC) við Háskóla Íslands, tímasetningu brottfalls og hvaða þættir spá fyrir hvort nemandi hætti námi eða ekki. Gögnin sem notast var við koma frá Nemendaskrá Háskóla Íslands, kennurum námskeiðsins og stöðuprófi lagt fyrir nemendur við upphaf misseris. Gögnin innihalda alla þá 484 nemendur sem skráðu sig í Calculus IC haustið 2012. Aðeins helmingur nemendanna lauk áfanganum, fjórðungur þeirra hóf ekki nám við áfangann, þrátt fyrir að vera skráðir, og fjórðungur hætti námi. Nemendurnir hættu námi nokkuð jafnt yfir önnina en helmingur brottfallsnemendanna hætti á fyrsta þriðjungi annarinnar. Lógítísk aðhvarfsgreining var notuð til þess að kanna hvaða þættir spá fyrir um það hvort nemandi hefji nám í áfanganum eða ekki. Cox proportional hazard líkan var síðan notað til þess að kanna hvaða þættir spá fyrir um það hvort nemandi sem hefur nám, ljúki áfanganum eða ekki og ef hann lýkur honum ekki, hvenar hann hætti. Niðurstöðurnar gefa til kynna að nemendur sem eru ekki með nógu góðan stærðfræðiundirbúning eru líklegri til þess að hætta námi en nemendur sem eru betur undirbúnir. Kvenkyns nemendur eru ólíklegri til þess að hefja nám en karlkyns nemendur en ef konur hefja nám eru þær líklegri til þess að ljúka áfanganum. Nemendur sem tóku stúdentspróf á réttum tíma eru líklegri til þess að hefja nám og líklegri til þess að ljúka áfanganum heldur nemendur sem frestuðu stúdentsprófi. Nemendur sem innrituðust í sína námsgrein sama ár og þeir tóku stúdentspróf eru líklegri til að hefja nám í Calculus IC. Fyrsta árs nemar eru líklegri til þess að hætta í áfanganum heldur en nemar á öðru eða hærra ári. The objective of this study was to evaluate the extent of dropout from an introductory course in practical calculus (Calculus IC) at the University of Iceland (UI), the time of dropout and which factors predict whether a student drops out or not. The data used in the study is from the Student ...